153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:07]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil bara taka undir það sem hér hefur verið sagt. Það þarf að forgangsraða þegar svona er. Búið er að setja mál á dagskrá sem veldur miklum deilum og núna þarf að forgangsraða í þágu fólksins svo að þeir sem þurfa þennan jólabónus fái hann sem fyrst. Því ætla ég bara að fara fram á að forseti taki þetta til greina svo hægt sé að afgreiða þetta mál sem brennur á svo gríðarlega mörgum.