153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:07]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vil fá að taka undir það sem hér hefur verið sagt og hvetja forseta til að skoða dagskrá þingfunda fram undan. Þegar er orðið verulegt rask á dagskránni. Við erum ekki komin nándar nærri eins langt og við hefðum kosið á þessum tímapunkti. Fjárlög eru enn þá í umræðu. Manni sýnist að þannig gætum við haldið áfram. Við erum loksins núna að fá að sjá meirihlutaálit vegna bandormsins. Þetta mun allt taka tíma í umræðu og síðan eru það auðvitað fjáraukalögin sem þarfnast afgreiðslu. En ég sé ekki að neitt af þessu fari í gegn ef dagskráin á að vera með þeim hætti sem nú er verið að leggja til. Ég skora því á forseta að gera breytingar á þessu.