fjárlög 2023.
Forseti upplýsir að á síðustu dögum þingsins er dagskráin auðvitað í stöðugri endurskoðun frá degi til dags og jafnvel innan dags. Varðandi þau mál sem hér hafa sérstaklega verið nefnd eða það þingmál sem er hér síðar á dagskránni, 9. mál, þá háttaði svo til að málinu var ekki útbýtt fyrr en í gær þannig að það þurfti að taka það á dagskrá með afbrigðum í dag. Það hangir saman við fjáraukalagafrumvarpið sem ekki var lokið fyrr en í hádeginu í dag, en forseti hefur auðvitað fullan vilja til þess að tryggja að 9. mál á dagskránni fái greiða leið í gegnum þingið þannig að unnt verði að bregðast við með þeim hætti sem þar er kveðið á um.