fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég tel gríðarlega mikilvægt að mál sem lúta að eingreiðslu til öryrkja fái framgang hér og fjallað verði um þau, að það verði fjallað um þau í fjárlagaumræðunni og líka varðandi umræðu um fjáraukann. Það er einfaldlega krafa um að þessi umræða verði sett í algeran forgang þar sem þetta er stjórnarskrárbundin löggjöf sem Alþingi þarf að afgreiða á hverju ári.
Annað sem mig langar að koma inn á lýtur að þremur fyrirspurnum til ráðherra, tveimur frá 8. nóvember síðastliðnum varðandi eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum og veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og svo fyrirspurn varðandi útselda vinnu sérfræðinga Stjórnarráðsins og opinberra háskóla frá 17. nóvember síðastliðnum.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki enn þá fengið svör við þessum fyrirspurnum. Er ekki von til þess að ég fái svör við þessum fyrirspurnum fyrir jól? Þetta eru meira en mánaðargamlar fyrirspurnir, tvær fyrirspurnir sem lúta að eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum og svo varðandi veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Er ekki von til þess að þetta komi fyrir jól, virðulegur forseti?