fjárlög 2023.
Forseti. Ég tek undir með þeim sem furða sig á því að eingreiðsla til öryrkja fyrir jólin sé ekki sett í meiri forgang en raun ber vitni ef litið er á dagskrá dagsins. En mig langar líka að ræða hvernig ákveðnum hluta þingheims er gert erfitt fyrir að taka þátt í lýðræðislegri umræðu hér inni. Hér var fundað inn í nóttina í fyrradag og við það kvarnaðist af mælendaskránni fjöldinn allur af þingmönnum sem áttu ekki heimangengt til að vera hér langt fram á nótt. Sem betur fer kláraðist umræðan ekki um þá nótt vegna þess að þá hefði það fólk verið svipt tjáningarfrelsi sínu hér inni, svipt því að geta tjáð sig um fjárlög. Sem betur fer teygðist umræðan yfir á næsta dag og þá kom bara í ljós að heill hellingur af þingmönnum, sem ekki hefðu átt kost á því hefði fyrirætlan forseta, um að klára umræðuna um nóttina, náð fram að ganga, kom á mælendaskrá og tjáði sig um fjárlög, eitthvað sem forseti stefndi á að svipta þau. (Forseti hringir.) Ég nefni þetta vegna þess að síðdegis í dag fór að kvisast út að það ætti að funda hér á morgun. Ég spyr herra forseta: Hversu margir þingmenn eiga ekki heimangengt á morgun? Hversu mörg okkar verða svipt því að geta tjáð sig um þau mál sem eru til umfjöllunar á morgun?