153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:13]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að á fundi með þingflokksformönnum í morgun gat forseti um þau áform sín að efna til þingfundar á morgun eins og ekki er óalgengt í desembermánuði þegar málafjöldi er mikill og þörf þingmanna til að ræða mál oft og ítarlega vex. Þá hefur verið brugðist við því með því að lengja þingfundi eða bæta við dögum og ekkert óvenjulegt við það.