fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég vil fagna því sem kom fram áðan í máli hæstv. forseta að hann virðist meðvitaður um mikilvægi þess að þau mál sem eru forsenda þess að Tryggingastofnun geti greitt út eingreiðsluna til öryrkja komist sem fyrst á dagskrá. Vegna þess að hér var minnst á að hugsanlega yrði þingfundur á morgun þá vil ég fá að spyrja hæstv. forseta hvort hann sjái fyrir sér og eigi von á því að þessi mál, sem fjöldi fólks úti í samfélaginu er að bíða eftir að Alþingi afgreiði, komist á dagskrá á morgun.