fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég styð það að forseti taki þau mál sem brýnt er að klárist fyrir jól, svokölluð dagsetningarmál, á dagskrá — helst á morgun. Það skiptir auðvitað máli að þeir sem þurfa síðan að fjalla um málin hafi einhvern tíma. Ef við erum að hugsa til þess að hjálpa fólki í aðdraganda jólanna þá dugar ekki að gera það einhvern tíma á milli jóla og nýárs eða á nýju ári og því tek ég svo sannarlega undir þetta.
Varðandi það að hér sé fundað á laugardegi og dagskrá fari úr skorðum þá er auðvitað eitt og annað um það að segja. Þetta mál var m.a. rætt í síðustu forsætisnefnd og á þeim fundi var gerð grein fyrir því að það yrði hugsanlega fundað laugardaginn 17. desember en aldrei kom til umræðu að fundað yrði á morgun. (Forseti hringir.) Einhverjir þingmenn, hæstv. forseti, eru að fara að gifta sig á morgun og væntanlega eru þá einhverjir aðrir þingmenn í þeirri veislu.