153. löggjafarþing — 45. fundur, 9. des. 2022.
fjárlög 2023.
1. mál
Forseti tekur undir það eða getur staðfest að það var rætt með ákveðnum hætti í forsætisnefnd síðastliðinn mánudag hvernig þetta yrði og forseti lagði upp með ákveðna áætlun fyrir vikuna. Svo þegar ljóst verður að sú áætlun sem forseti byggði á hefur raskast nokkuð þá kallar það á svona breytingar sem afleiðing af því. Við erum nokkuð á eftir áætlun miðað við það sem forseti lagði upp með í upphafi vikunnar.