153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:18]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Við ræðum hérna um fjárlögin og mig langaði aðeins að koma inn á nokkur atriði sem tengjast þeim og þá ekki síst því sem við í Viðreisn erum að leggja til við afgreiðslu fjárlaga þetta árið. Það verður forvitnilegt að fylgjast með umræðunni hérna, svona að því marki sem maður hefur náð. Þetta er orðinn svolítið langur tími sem við höfum gefið okkur í þetta og þannig á það auðvitað að vera því að þetta er jú eitt mikilvægasta málið sem við tökum fyrir á hverjum þingvetri eins og við þekkjum.

Áður en ég færi mig yfir í það sem ég ætla að gera að meginefni ræðu minnar þá langar mig aðeins að koma inn á það sem má segja að sé andrúmsloftið og aðdragandinn að því sem hér er til umfjöllunar. Við erum komin með samfélagið í fullan gang eftir Covid og það setur mark sitt bæði á ganginn í samfélaginu og svo fjárlagagerðina og fjárlögin. En það er líka eitthvað sem litar inn í hinn pólitíska veruleika í samfélaginu. Þessi ríkisstjórn var sett á laggirnar fyrir fimm árum undir þeim formerkjum að hún ætlaði að tryggja pólitískan stöðugleika. Það var mikið farið í gegnum það allt saman á sínum tíma, að það væri markmið í sjálfu sér. Pólitískur stöðugleiki, var sagt. Þá var kannski minna talað um hugmyndafræði, enda hver getur hugmyndafræði eða pólitískt erindi ríkisstjórnar verið sem inniheldur flokk sem er einna lengst til hægri og annan sem er lengst til vinstri á litrófinu? Þess vegna fóru menn að tala mikið um þennan pólitíska stöðugleika. Það breytir því ekki að einhvers konar stefnumörkun þarf að eiga sér stað í samfélaginu og það er alveg augljóst að þegar ríkisstjórn er skipuð eins og hún er á Íslandi í dag þá er eðli máls samkvæmt svolítið erfitt að finna einhvern snertiflöt á því hvert skuli stefna. Þetta höfum við séð gerast á hverju ári, að það ríkir eiginlega bara nokkurs konar stefnuleysi. Við erum þar með flokk sem í orði kveðnu, og hefur það á stefnuskrá sinni í ríkisstjórn, vill helst draga úr ríkisútgjöldum, „báknið burt“ er eitt af slagorðunum. Þetta er flokkur sem kynnir sig til leiks sem býsna meðvitaðan um það að ríkisfjármálin þurfi að vera ábyrg og ekki sé endalaust hægt að hlaða bara útgjaldahliðina, menn verði að hafa skynsemi og ráðdeild að leiðarljósi og tekjuhliðin verði auðvitað að vera skynsamleg líka. Á hinum endanum erum við með flokk sem er lengst til vinstri og er þá kannski að margra mati hallari undir það að ýta undir útgjaldahliðina en spá minna í tekjuhliðinni, og þannig myndast þessir árekstrar.

Það þarf í sjálfu sér ekkert að vera neitt athugavert við þetta. Þetta er bara svona í pólitíkinni stundum og síðan erum við með flokk sem er þarna á miðjunni og hann hefur kannski fitnað einna mest á þessu ríkisstjórnarsamstarfi hingað til. Þetta er pólitíski veruleikinn sem við höfum verið með í höndunum undanfarin ár. Ofan í þetta kom síðan heimsfaraldur og heimsfaraldurinn gerði ansi margt sem litar þá stöðu sem við erum í núna, bæði hvað varðar pólitíkina að því leytinu til að það varð auðvitað til nokkurs konar samstaða um það, bæði meðal ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu, að í heimsfaraldri þurfi að grípa til aðgerða sem eiga sér ekki neina hliðstæðu. Það verður gríðarlega mikill útgjaldaþrýstingur á ríkissjóð og menn verða sammála um að fara þurfi í dýrar og kostnaðarsamar aðgerðir og sammála um að taka þurfi lán og sammála um að sú staða muni kannski lita hagkerfið og ríkisfjármálin lengi á eftir. Síðan þegar við erum komin út úr faraldrinum tökum við til við að vinna úr þeirri stöðu og við erum að mörgu leyti byrjuð á því. En þá erum við einmitt í þeirri stöðu núna, vegna þess að hagkerfið er á fleygiferð eftir heimsfaraldur, að við þurfum frekar að vera á bremsunni heldur en hitt, vegna þess að við erum að kljást við mjög háa vexti og mjög háa verðbólgu.

Eitt af því sem gerðist í faraldrinum var það að vextir fóru hér niður mjög hressilega, hratt. Og hvað gerist í hávaxtalandi, landi sem er öllu jafna hávaxtaland, þegar vextir fara mjög hratt niður? Jú, það myndast auðvitað gríðarleg spenna á húsnæðismarkaði. Menn fara að skuldbreyta lánum og menn fara að stækka við sig, taka viðbótarlán og annað í þeim dúr og þetta býr til ákveðinn mekanisma sem við erum síðan að súpa svolítið seyðið af. Það er reyndar líka sjálfstætt ábendingarefni hér: Hvað þarf til þess á Íslandi að vextir fari niður í eitthvað svipað og við þekkjum frá nágrannalöndunum? Jú, til þess að vextir á Íslandi fari niður í eitthvað sem við getum kallað skaplegt, að við förum úr stöðugu hávaxtaumhverfi niður í vaxtastig sem er þolanlegt fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu, þá þarf heimsfaraldur. Hagkerfi heimsins þarf nánast að stöðvast til þess að vextir á Íslandi þrýstist niður í það sem menn búa þó við í kannski aðeins stöðugra umhverfi í mörgum nágrannalöndum okkar.

Þetta er ég að nefna hér vegna þess að fjárlögin sem við ræðum í dag eru því marki brennd að við erum að ræða þau og samþykkja á sama tíma og við erum að kljást við mjög háa verðbólgu og mjög háa vexti. Aldrei þessu vant er staðan sú að það er ekki bara á Íslandi sem vextir eru háir og verðbólga há. Það á einnig við um önnur lönd og ekki síst löndin í Evrópu sem við berum okkur saman við. Þar spilar inn í stríðið í Úkraínu o.fl.

Hitt er síðan annað að við erum hér á Íslandi í þeirri stöðu að vextir eru að hækka miklu hraðar og miklu skarpar en gerist við sams konar verðbólguaðstæður í Evrópu. Þar spilar inn í þessi blessaði gjaldmiðill sem er alltumlykjandi, allt í kring, alltaf þegar við tölum um fjárreiður ríkisins og alltaf þegar við erum að tala um efnahagsmál. Það er bara staðreynd sem við komumst ekkert fram hjá og það er staðreynd sem má fá miklu meiri athygli í sal Alþingis, í umræðum hér, einfaldlega vegna þess að á hverju ári þegar við erum að samþykkja fjárlög þá er þetta staðreynd sem blasir við okkur. Menn vilja ekki allir horfast í augu við þetta en samt er þetta nú engu að síður þannig. Veruleikinn hér núna, jú, vissulega svipaðar verðbólgutölur og í Evrópu en miklu hærri vextir og þeir eru að hækka miklu hraðar en annars staðar. Hverjir líða fyrir það? Það eru heimilin í landinu, það eru fyrirtækin í landinu og það setur okkur síðan í þá stöðu í fjárlagagerðinni að við þurfum að taka tillit til hópa, mikið tillit til hópa sem eru að fara illa út úr þeirri stöðu allri. Vegna þess að það er há verðbólga þá leggur það á herðar okkar alþingismanna og ríkisstjórnarinnar ekki síst að menn þurfi að gæta aðhalds. Menn þurfa að vera með Seðlabankanum. Seðlabankinn er að hækka vexti til að berjast gegn verðbólgu og það sem ríkisfjármálin þurfa að gera er að vera aðhaldssöm á móti til að róa ekki í öfuga átt við Seðlabankann. Þarna er erindisleysi ríkisstjórnarinnar algert, fullkomin falleinkunn sem hægt er að gefa þarna. Ef menn vilja ekki hafa orð mín eða orð annarra þingmanna Viðreisnar fyrir því þá getum við bara vitnað hér til þess sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði ekki fyrir margt löngu. Ég ætla að lesa frétt sem birtist á mbl.is. Þar segir, með leyfi forseta:

„Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segist hafa þungar áhyggjur af auknum útgjöldum ríkisins.“

Þarna er verið að vísa í það að tilkynnt var um stóraukin útgjöld ríkisins, áætluð, á næsta ári, m.a. til heilbrigðismála og löggæslu. Svo tökumst við á um það hér í þessum sal hvernig beri að skipta kökunni. En hann er auðvitað þarna að tala um heildarmyndina og ég ætla að halda áfram að vitna í þessa frétt, með leyfi forseta:

„„Við erum ekki hrifin af því, þetta gerir okkar verk erfiðara. Aukin ríkisútgjöld á þessum tíma hafa ekki jákvæð áhrif á verðbólgu,“ segir Ásgeir í samtali við mbl.is. „Þetta mun mögulega hægja á því að við náum verðbólgu niður. Á sama tíma er margt að gerast.“

Ásgeir segir að Seðlabankinn komi ekki endilega til með að hækka stýrivexti vegna aukinna ríkisútgjalda.

„Peningastefnunefnd kemur saman í febrúar og þá tökum við stöðuna, hvort verðbólga sé á leiðinni niður. Við töldum núna að 6% vextir væru nægilegt aðhald til þess að ná verðbólgunni niður á ásættanlegum tíma. Það er alltaf ákveðin spurning hversu hratt við eigum að ná verðbólgunni niður. Það er dýrt að ná henni hratt niður.“

Hefur ekkert verið rætt við þig eða aðra í Seðlabankanum um möguleg áhrif hærri ríkisútgjalda?

„Nei. Ég veit ekki hvað við getum gert í því, ég hef lagt fram hvatningu bæði við þing og stjórn um að ná fram aðhaldi,“ segir Ásgeir.

Hann segir að þótt þetta hafi ekki verið borið undir Seðlabankann sérstaklega hafi það verið gert með fjárlögin í upphafi. „Við skilum umsögn um fjárlögin og vorum í sjálfu sér ekkert ósátt með þau að öllu leyti, en það er aðeins búið að bæta í. Auðvitað hefur Seðlabankinn þungar áhyggjur af því að það eigi að fara að eyða töluvert miklum peningum. Ríkisútgjöld hafa veruleg áhrif sem getur verið gott þegar það er samdráttur en ekki þegar það er uppsveifla,“ greinir hann frá.“

Þetta eru auðvitað bara almenn sannindi. Ríkið getur gefið í á samdráttartímum, gerði það í Covid, en þegar Covid sleppir og við erum komin á hinn ásinn þá þarf ríkisvaldið að hegða sér með öðrum hætti. Það er ekki alveg sársaukalaust að gera það, við gerum okkur grein fyrir því, en engu að síður er það ábyrgðin sem blasir við ríkisstjórn á hverjum tíma að vinna með Seðlabankanum þegar bæði verðbólga og vextir eru að sliga heimili landsins.

Mig langar aðeins, áður en ég fer í það sem við í Viðreisn erum að leggja til við þessi fjárlög, að leggja aðeins meira út frá því sem seðlabankastjóri er að segja í þessari grein. Til að mynda þetta: Við töldum núna að 6% vextir væru nægilegt aðhald til þess að ná verðbólgunni niður á ásættanlegum tíma. Við erum orðin svo vön þessum tölum. Við töldum núna að 6% vextir væru nægjanlegt aðhald. Það er ekki einu sinni víst. Þetta eru margfalt hærri tölur en alls staðar í löndunum í kringum okkur. Þetta er bara efnahagslegur veruleiki sem við Íslendingar erum orðnir svo vanir og við erum orðnir svo samdauna honum að við kippum okkur ekki lengur upp við þetta. En þetta er auðvitað klikkað vaxtastig. Það er algjörlega með ólíkindum og hreinlega sturlað hvaða áhrif þetta hefur á húsnæðislán heimilanna sem svo aftur kallar á það að við í þessum sal þurfum að huga sérstaklega að því hvernig við getum mætt þeim sem verst fara út úr þessari stöðu. Það er eitt af því sem ég vildi leggja út af úr þessu viðtali við seðlabankastjóra. Hitt er síðan það sem blaðamaðurinn spurði um, hvort eitthvað hefði verið rætt við Seðlabankann um möguleg áhrif hærri ríkisútgjalda. Og þá kemur þetta svar: „Nei. Ég veit ekki hvað við getum gert í því, ég hef lagt fram hvatningu bæði við þing og stjórn um að ná fram aðhaldi.“ Það má vissulega til sanns vegar færa að seðlabankastjóri hefur gert það. Hann hefur gert eitthvað af því. Hann hefur reyndar verið uppteknari af því sem er á ábyrgð almennings, einkaneyslunni, það hversu Íslendingar eru duglegir við að eyða peningum í útlöndum. Minna finnst mér talað um ríkisfjármálin í því samhengi miðað við það hvað það er stór póstur í baráttunni gegn verðbólgu. En þarna í þessu viðtali, sem ég hef verið að gera að umtalsefni, hefur hann þó a.m.k. stigið nokkuð fast niður og það er þá í höndum okkar þingmanna að bregðast við því í fjárlagagerðinni.

Hitt er síðan annað að við vitum alveg nákvæmlega hvernig hlutirnir virka hér í þinginu. Það er auðvitað meiri hlutinn hverju sinni sem stýrir för. Það er þá á ábyrgð meiri hlutans að reka ríkið eftir þeim fjárlögum sem samþykkt eru hverju sinni. Það verður ekki annað sagt en að á þeim stað sem við erum núna í umræðunni höfum við ekki sérstaklega miklar ástæður til þess að vera bjartsýn. En þetta er aðeins af þeim pólitíska veruleika og þeim vaxtalega og verðbólgulega veruleika sem við erum í þegar við erum að fara í þetta allt saman. Í þessu samhengi langar mig líka að benda á ábyrgð þeirra stjórnmálaflokka sem fyrir síðustu kosningar töluðu um lágvaxtaskeiðið og að hér væri runnið upp lágvaxtaskeið. Lægstu vextir í sögunni, var sagt og auglýst úti um borg og bý og í strætóskýlum, á samfélagsmiðlum og úti um allt. Lægstu vextir í sögunni voru hér á Íslandi um fárra mánaða skeið, rúmu ári síðar erum við komin upp í 6%. Velkominn til Íslands. Svona er þetta alltaf hérna og þetta er bein afleiðing af því að við erum með lítinn gjaldmiðil sem við höfum ekki mikla stjórn á. Þrátt fyrir fögur fyrirheit í gegnum tíðina og þrátt fyrir að hver fjármálaráðherrann á fætur öðrum hafi í gegnum Íslandssöguna fullyrt að það sé vel hægt að skapa stöðugleika hér í skjóli íslenskrar krónu þá hefur engum þeirra tekist það. Vissulega hafa sveiflurnar sumpart verið minni að undanförnu en þær eru alltaf ýktari en í löndunum í kringum okkur. Það var nú eitt.

Síðan langaði mig að koma inn á það sem hv. þm. Daði Már Kristófersson var að nefna hér í ræðu fyrr í dag undir liðnum störf þingsins sem er ágætisbrýning inn í þessa umræðu. Ég ætla að leyfa mér að vitna í ræðu hans:

„Það sem við þurfum að gera er að standa í lappirnar. Ef við gerum það ekki köllum við yfir þjóðina viðvarandi verðbólgu sem við höfum mýmörg dæmi um í sögunni að skilar sér í engu öðru en að drepa niður hagvöxt á Íslandi og draga úr lífskjörum til lengri tíma. Það er erfitt og það er andstyggilegt að þurfa að segja nei við útgjöldum en í dag er staðan þannig að Ísland er það ríki innan OECD sem er með hæstu vaxtabyrðina sem hlutfall af ríkisútgjöldum. Ekkert ríki er ofar og í þeim hópi eru ríki sem skulda margfalt meira en íslenska ríkið. Þetta er ósjálfbær staða sem við verðum að bregðast við.“

Við í Viðreisn höfum ákveðnar hugmyndir um það hvernig megi bregðast við í fjárlögum og vissulega, sem smáinngangur að því, er það þannig að lítill þingflokkur á þingi hefur ekki afl ráðuneytanna til að kafa ofan í hvern einasta fjárlagalið eða geta reiknað út og útfært alls konar kerfisbreytingar innan ráðuneyta, milli stofnana, sameiningar og annað. En við yfirferð okkar um fjárlögin lá það þó alveg ljóst fyrir að það eru gríðarlegir möguleikar til hagræðingar í ríkisrekstrinum og reyndar alveg nauðsynlegt að fara í það.

Þá að því sem við höfum verið að nefna hér í mínum flokki sem er okkar sýn á ábyrgari fjárlög sem draga úr halla ríkissjóðs og styðja við heilbrigðiskerfi og barnafjölskyldur. Þetta eru tillögur sem við ætlum að gera við þetta frumvarp. Svo að ég fari yfir það á hundavaði hvað við ætlum að gera þá erum við að tala um að lækka skuldir ríkisins um 20 milljarða í því augnamiði að minnka þann vaxtakostnað sem fellur til á hverju ári og ætti að fara í innviðauppbyggingu eða til að greiða skuldir eða styðja við velferðina að öðru leyti. Við erum að tala um að hagræða í ríkisrekstri um 3 milljarða og við viljum styðja við barnafjölskyldur með ýmsum leiðum fyrir 7,5 milljarða, fjárfesta í heilbrigðiskerfinu fyrir 6 milljarða og tekjuöflun upp á 6 milljarða í hækkun veiðigjalda og svo með því að leggja kolefnisgjöld á mengandi iðnað upp á 13,5 milljarða. Síðan erum við líka að nefna að það má selja Íslandsbanka á næsta ári, og vonandi komumst við í það. Við bendum á að í fjárlagafrumvarpinu eru verðmæti eignarhluta ríkisins vanmetin um 13 milljarða. Það er talað um einhverja 76 milljarða í fjárlagafrumvarpinu en við teljum að ef miðað er við eigið fé bankans samkvæmt síðasta uppgjöri þá sé þarna um vanmat upp á 13 milljarða að ræða.

Svo að ég fari í gegnum þetta allt saman þá skulum við byrja á því að við erum að tala þarna um 20 milljarða til að lækka skuldir ríkisins. Þar erum við að gera það sem algerlega er ábyrgt og á auðvitað að vera keppikefli ríkisstjórna á hverjum tíma, ekki síst þegar við erum með jafn skuldsettan ríkissjóð og raun ber vitni upp úr heimsfaraldri. Þá á það að vera keppikefli að gera þetta hratt og það er ríkisstjórnin ekki að gera með nægilega öflugum hætti, finnst okkur. Það að vaxtagjöld ríkisins séu í kringum 100 milljarðar á ári er alveg með ólíkindum. Það er með ólíkindum að vaxtagjöld skuli vera hæsti liðurinn í fjárlögunum. Eins og áðan var nefnt býr ekkert annað OECD-ríki við eins há vaxtagjöld af vergri landsframleiðslu og Ísland og það þó að skuldirnar séu víða hærri en hér. Þess vegna teljum við mikilvægt að við reynum að gera okkar til þess að lækka skuldirnar meira en orðið er. Ofan á þetta má svo nefna að ríkissjóður hefur verið rekinn með halla frá árinu 2019 og það er útlit fyrir að uppsafnaður halli áranna 2019–2023 muni nema 780 milljörðum kr. Svo er þá ofan á það gert ráð fyrir hallarekstri út árið 2027. Þarna erum við þá með ríkissjóð sem er rekinn með tapi í níu ár samfellt og það er frekar dapurlegur vitnisburður um störf þessarar ríkisstjórnar, verður maður að segja.

Hér má rifja upp álit fjármálaráðs á síðustu fjármálaáætlun þar sem varpað var ljósi á kerfislægan hallarekstur ríkissjóðs þar sem tekjum var yfirleitt eytt samstundis eða um efni fram og minnt á að tapreksturinn hófst fyrir Covid. Nú á að halda honum áfram vel inn á næsta kjörtímabil. Þetta er ekkert annað en óábyrg hagstjórn í formi aðhaldsleysis og skuldasöfnunar. Slíkt ástand til lengri tíma er fyrirgefanlegt í heimsfaraldri en til lengri tíma algerlega óverjandi vegna þess að þetta bitnar bara á þeirri velferð sem við viljum tryggja fólki í framtíðinni. Þessi staða áfram gerir það að verkum að við höfum minni og minni fjármuni á milli handanna til að reka heilbrigðiskerfi, menntakerfi, löggæslu, samgöngur og allt það sem við viljum hafa sem grundvöll að góðu, sterku og öflugu velferðarkerfi með þéttriðið velferðarnet til að grípa þá sem höllustum fæti standa. Um þetta má hafa lengri orð í sjálfu sér en ég læt þetta duga. En við erum líka, svo að ég haldi áfram með það sem við erum að leggja til, að tala um hagræðingu í ríkisrekstri upp á 3 milljarða kr. og það eru alls konar tækifæri í ríkisrekstrinum eins og ég nefndi áðan. Við leggjum til að ríkisstjórninni verði falið að fara í markvissar aðgerðir, miklu markvissari en verið er að ræða um. Það má þó ríkisstjórnin eiga að hún er dugleg að tala um ábyrg ríkisfjármál. Hún er dugleg að tala um að það eigi að hagræða, að það eigi að sameina stofnanir, að það eigi að gera hitt og þetta í hinum og þessum málaflokki til þess að auka skilvirkni. En aðgerðirnar vantar. Þegar við í Viðreisn erum að tala um þessa 3 milljarða, sem er tiltölulega afmörkuð tala og segir okkur ekkert endilega allt um heildarmyndina sem býður upp á miklu meiri hagræðingartækifæri, erum við m.a. að nefna að draga eigi til baka fjölgun ráðuneyta og ráðherrastóla frá upphafi kjörtímabilsins. Þetta er það sem við höfum verið að benda á frá því að Stjórnarráðinu var breytt eftir kosningarnar síðast. Það er algerlega óverjandi að það kosti 2 milljarða á einu kjörtímabili að bregðast við kosningaúrslitum, að bregðast við því að einn flokkur vann sigur í kosningunum og það þurfti að endurspeglast í stjórnarsamstarfinu með 2 milljarða kr. reikningi á heimilin í landinu. Það er búið til mun flóknara og óskilvirkara Stjórnarráð eins og er að birtast í þingnefndum þegar hinir og þessir aðilar eru að koma með umsagnir um mál, þá sést oft glögglega að flækjustigið í þessum breytingum öllum er enn að draga úr skilvirkni og búa til kostnað. Við erum ekki enn búin að bíta úr nálinni með það. Þessi tillaga okkar í Viðreisn og hugmynd ætti að vera tekin alvarlega af ríkisstjórninni. Mig langar að minna á það að ef menn þurfa að bregðast við kosningaúrslitum eftir kosningar með því að breyta Stjórnarráðinu þá er líka hægt að gera það með því að fækka ráðuneytum. Það hefði verið hægt að halda ráðherrum Framsóknarflokksins jafn mörgum en fækka á hinum póstunum ef menn hefðu viljað búa til eitthvað nýtt vægi eftir kosningaúrslit. En í þeirri ríkisstjórn sem leggur áherslu á að auka ríkisútgjöld sem mest var það aldrei inni í myndinni.

Við nefnum líka í tillögum okkar að styðja við barnafjölskyldur og þar erum við að tala um 7,5 milljarða. Það er auðvitað út af þeim áhrifum sem verðbólga og vextir hafa haft. Þetta viljum við gera með því að hækka barnabætur, vaxtabætur og húsnæðisbætur. Ég vil árétta það að við erum í þeirri stöðu að vextir hér eru að hækka miklu meira en í nágrannalöndunum þrátt fyrir að verðbólgan sé svipuð á Íslandi og í öðrum löndum. Þarna er um skekkju að ræða sem er sköpuð af íslensku krónunni. Við getum ekki látið þann kerfisvanda bitna bara á heimilum landsins, á fjölskyldum landsins sem nú eru margar hverjar að glíma við það að greiðslur af húsnæðisláni þeirra hafa hækkað um mögulega 100.000 kr. á mánuði, við þekkjum dæmi um það, og meira en 100.000 kr. á mánuði. Þetta er ekkert lítið högg yfir árið fyrir eina fjölskyldu. Reyndar hefur komið fram í úttekt frá Seðlabankanum að greiðslubyrði allra íbúðalána hefur aukist að meðaltali um 13.000–14.000 kr. á mánuði frá því í byrjun árs 2020 og fram í ágúst 2022 hjá nýjum lántakendum, rúmlega 160.000 kr. á ári. Í þessum tölum gerðu menn reyndar athugasemdir við það hvar byrjunarpunkturinn var valinn því að hægt hefði verið að fá aðrar niðurstöður með því að taka annan punkt í því. Þetta er auðvitað bara meðaltal en þó að maður taki bara meðaltalstöluna þá er þetta talsvert högg, þetta leggur sig á nærri 160.000 kr., kannski á bilinu 160.000–170.000 kr. á ári, og til að geta borgað það þurfa heimilistekjurnar að aukast um 250.000–300.000 kr. á ári. Og þetta er hjá fólki með meðaltekjur, sirka hálf mánaðarlaun sem fara bara í hækkun vaxta. Það er mjög mikilvægt að bregðast hressilega við þarna.

Við höfum alltaf talað fyrir því í Viðreisn að þegar við erum í svona aðgerðum sé þeim svolítið skipulega beint til þeirra sem raunverulega þurfa á að halda frekar en að við setjum skalann of hátt og reynum að hjálpa of mörgum með svolítið útþynntum hætti. Þannig eiga ríkisfjármálin að virka. Við eigum að hjálpa þeim sem raunverulega þurfa á hjálp að halda og þess vegna eigum við að einbeita okkur að þeim heimilum og því fólki sem verður harðast úti út af verðbólgu og vöxtum. Þannig á það að vera.

Mig langar líka til að nefna, af því að við erum að nefna vaxtabætur í þessu samhengi, að það er mín bjargfasta skoðun að meðan við erum með íslensku krónuna þá sé tvennt sem þurfi alltaf að fylgja: Það er öflugt vaxtabótakerfi og verðtrygging. Þarna verður erfitt að slíta í sundur. Þetta er bara fórnarkostnaðurinn sem fylgir því að vera með svona litla mynt sem sveiflast svona mikið og býr til svona hátt vaxtastig. Það þurfa alltaf að vera í fókus hjá okkur einhver svona úrræði eins og vaxtabætur. Verðtryggingin er síðan annars konar afleiðing af sömu rót, getum við sagt.

Svo vildi ég líka nefna fleira. Við viljum fjárfesta í heilbrigðiskerfinu og leggja í það 6 milljarða kr. Þarna erum við fyrst og síðast og að mestu leyti að tala um það að gera gangskör í því að gera heilbrigðiskerfið meira aðlaðandi fyrir lykilstéttir og það vill nú svo til að þessar stéttir eru að mestu leyti kvennastéttir. Þannig styrkjum við raunverulega heilbrigðiskerfið til lengri tíma. Það er auðvitað mikil mannekla í kerfinu eins og við þekkjum og það er mjög forvitnilegt að fylgjast með því þegar ráðherrar koma hér upp í pontu hver á fætur öðrum og tala alltaf um að mannekla sé eitthvað sem hafi dottið ofan í fangið á þeim og því sé í raun og veru lítið hægt að gera, þetta sé ekki spurning um fjárhagsvanda eða eitthvað heldur hafi bara allt í einu einhver mönnunarvandi dottið niður úr himninum ofan í fangið á ríkisstjórninni og hún bara ráðalaus. En mönnunarvandinn er auðvitað mannanna verk. Mönnunarvandinn er til vegna þess að kerfið hefur verið illa skipulagt og að mörgu leyti vanrækt og vanfjármagnað að einhverju leyti í gegnum tíðina. Það er orðið óspennandi fyrir lykilstéttir að starfa í því og því erum við að leggja til að fjármunum verði varið til að bregðast við þessari stöðu. Heilbrigðisstarfsfólk er eftirsóttustu starfskraftar í heimi sem færir okkur aftur að mönnunarvandanum. Þess þá heldur þurfum við að hafa fyrir því að búa til aðlaðandi starfsumhverfi. Við í Viðreisn lögðum fram þingsályktunartillögu um bætt kjör kvennastétta árið 2018 sem var samþykkt en lítið hefur verið með hana gert. Þarna eru laun stór þáttur en líka vinnuumhverfi, tækifæri til starfa, álag og fleiri hlutir. Þarna getum við alveg gert ákall um að það sé einhvers konar þjóðarsátt um að efla þessi störf. Það styrkir heilbrigðiskerfið til lengri tíma litið eins og ég var að nefna. Þarna skortir svolítið upp á að pólitíkin hafi sýnt nægilega forystu í þessum efnum, frekar talið sig vera í þeirri stöðu að bregðast við orðnum hlut án þess að átta sig á orsakasamhenginu í þessu öllu. Ég hvet því alþingismenn til að velta þessari tillögu Viðreisnar fyrir sér.

Það sem við nefnum hér til að mynda sem tekjuöflun í þessu öllu er m.a. hækkun á veiðigjöldum og þar teljum við að hægt sé að fá 6 milljarða til að ráðstafa. Það eru miklir fjármunir. Það væri hægt að halda hér langa tölu um það að veiðigjaldafyrirkomulagið sem við erum með sé eitthvað sem Viðreisn í sjálfu sér styður ekki. Við viljum breyta þessu fyrirkomulagi, eins og við höfum margoft talað um í ræðum í þingsal, viljum fara aðra leið við að verðleggja aðgöngumiðann og aðgönguréttinn að auðlindum sjávar, sem er miklu skilvirkari leið og myndi skila meiri tekjum en veiðigjaldsleiðin. En við erum með þetta kerfi sem nú er og það sem við höfum verið að tala um í þessu samhengi og bent á er að það hefur verið methagnaður í sjávarútvegi, nam 65 milljörðum í fyrra eftir skatta og gjöld. Markaðsvirði veiðiréttinda nú er um 6 milljörðum hærra en núverandi veiðigjöld og því erum við að leggja til þessa hækkun sem því nemur. En ég árétta að markaðsleið myndi skila okkur sanngjarnari gjaldtöku í sjávarútveginum, myndi skapa fyrirsjáanleika fyrir útgerðirnar í landinu til 20, 25, 30 ára, það er auðvitað útfærsluatriði. Það væri það langbesta sem við myndum gera fyrir samfélagið og þá ríkisfjármálin í leiðinni.

Síðan viljum við leggja kolefnisgjöld á mengandi iðnað og þar erum við að tala um 13,5 milljarða kr. Þar bendum við á, sem ég held að flestir alþingismenn og flestir í samfélaginu séu sammála um, að við Íslendingar eigum að vera leiðandi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Við höfum aldeilis tækifæri til þess hér með alla okkar hreinu orku. Öflugasta og skilvirkasta verkfæri stjórnvalda eru þessir hagrænu hvatar sem hægt er að nota, til að mynda kolefnisgjald sem leggst á alla losun. Við erum þá að tala um kolefnisgjöld á stóriðju sem hingað til hefur verið undanþegin slíkum gjöldum þrátt fyrir að vera ein stærsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Þarna erum við að tala um 13,5 milljarða kr.

Mig langaði síðan að koma inn á annað sem við erum líka að tala um í þessu og það er að selja Íslandsbanka. Ég er nú reyndar þeirrar skoðunar að við eigum að ganga mun lengra, kannski ekkert endilega á næsta ári heldur á kjörtímabilinu og selja Landsbankann líka. Það var nú einkar ánægjulegt að heyra hér í störfum þingsins fyrr í dag hjá hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur að VG virðist vera orðinn ötulasti talsmaðurinn fyrir því að selja báða bankana, hún færði fyrir því prýðileg rök. Við fögnum því auðvitað í Viðreisn að vera komin með liðsmenn lengst af vinstri vængnum inn í þá baráttu. En hér erum við bara að tala um Íslandsbanka. Við erum í þeirri stöðu að síðasta tilraun ríkisstjórnarinnar til að selja hluta af Íslandsbanka gekk mjög illa, vægast sagt, og þá ætla ég ekkert að þreyta tilheyrendur með því að rekja það í einhverjum smáatriðum og velta fyrir mér kaupverði eða einhverju slíku. Þetta tókst illa vegna þess að traustið fór. Við erum í þeirri stöðu að það leikur verulegur vafi á því að við getum haldið áfram að selja. Við erum hins vegar í þeirri stöðu, bara út frá fjárlögum og út frá ríkisfjármálunum í heild sinni, að við þurfum þessa peninga og það er beinlínis gert ráð fyrir þeim, þar er verið að tala um einhverja 67 milljarða. Það sem við bendum á í okkar tillögu hér og nú er að í fjárlagafrumvarpinu er raunvirði hlutarins vanmetið, þ.e. sé miðað við eigið fé bankans samkvæmt síðasta uppgjöri. Þarna erum við að tala um 13 milljarða. Hitt er síðan annað mál: Verður pólitíski veruleikinn þannig, verður traustið í samfélaginu þannig, verður andrúmsloftið í samfélaginu þannig að við getum farið í sölu á Íslandsbanka? Þar þurfum við að stíga nokkur skref en við höfum tímann aðeins fyrir okkur í því. Við þurfum ákveðna hugarfarsbreytingu hjá ríkisstjórnarflokkunum til að geta farið í þá vegferð. Ég hef það svolítið á tilfinningunni að menn séu að láta kylfu ráða kasti. Ríkisstjórnarflokkarnir ætli bara svolítið að láta þetta einhvern veginn ráðast, vilji ekki skoða almennilega hvað fór úrskeiðis í sölunni, sem er auðvitað ávísun á það að traust verður ekki unnið upp á nýjan leik. En ég ætla að leyfa mér að vona að með því að stíga rétt skref þá getum við farið í það að selja það sem eftir stendur af hlut ríkisins í Íslandsbanka og við myndum þá gera það á sem opnastan hátt, með eins miklu gagnsæi og hægt er. Sjálfur myndi ég persónulega vilja hafa útboðið eins almennt og hugsast getur. Ég held að við séum sammála um það öll, varðandi það fyrirkomulag sem við reyndum síðast, að það er kannski hvorki mikill pólitískur vilji né almennur vilji til þess í samfélaginu að fara svipaða leið og þá.

Þá hef ég gert grein fyrir því sem við í Viðreisn erum að reyna að halda á lofti í þessari umræðu um fjárlögin. Mig langaði að nefna fleira í þessu samhengi á þeim stutta tíma sem ég hef hér til umráða en nú eru kjarasamningar í gangi og það andrúmsloft býr til mikinn útgjaldaþrýsting á ríkissjóð. Ég þykist vita það, hvað varðar vini mína í VG, að það getur verið erfitt að standast þann þrýsting þeim megin línunnar. Það er hins vegar eilíft undrunarefni að það er jafn erfitt fyrir flokkinn sem lengst er til hægri í stjórnarsamstarfinu að standast útgjaldaþrýstinginn ef marka má reynslu undanfarinna ára þannig að ég hef smááhyggjur af því að kjarasamningarnir, þær aðgerðir sem ríkisvaldið ætlar að grípa til vegna þeirra, geti aðeins riðlað myndinni hér hjá okkur. En við verðum að vona það besta.

Síðan langar mig líka aðeins að nefna, af því að talað hefur verið um að bæta aðeins í fjármuni til löggæslu, að það hrekkur skammt þegar við erum að tala um vanfjármögnun sem hefur verið bæði í löggæslu, í því sem lýtur að dómstólum, í því sem lýtur að fangelsismálakerfinu. Þetta nefni ég sérstaklega vegna þess að hér hefur verið boðað það sem kallað hefur verið stríð gegn skipulegri glæpastarfsemi. Það er ekki að sjá í þessu fjárlagafrumvarpi, þótt vissulega sé eitthvað aðeins sett í til viðbótar við það sem upphaflega var áformað, að menn séu að reyna að fjármagna eitthvert stríð. Þessi hugtakanotkun er röng. Hún setur okkur í afskaplega skrýtna stöðu, sérstaklega þegar við erum að skoða niðurstöðuna í fjárlögunum gagnvart þessu.

Mig langar líka að nefna að lokum, af því að við erum að fara að fást við útlendingafrumvarpið, sjálfsagt í næstu viku, að í stóra samhengi ríkisfjármálanna þá vantar okkur Íslendinga fleira fólk. Það vantar fleira fólk til Íslands. Okkur vantar fleira fólk til að byggja upp verðmæt störf og hagkerfið. Hluti af þeim fjölda getur vel komið í gegnum það kerfi sem við í daglegu tali köllum hælisleitendakerfið, þ.e. fólk sem hingað kemur til að sækja um vernd. Það eru nákvæmlega jafn mikil verðmæti í því fyrir framtíðaruppbyggingu samfélagsins og í þeim sérfræðingum sem við erum að tala um að krækja í utan EES eða í öllu því flæði sem á sér stað með hinni frjálsu för vinnuafls innan EES-svæðisins. Þetta er eitthvað sem mér finnst mjög fínt að halda á lofti þegar við erum að fara í þá erfiðu umræðu sem bíður okkar í því máli.

En heilt yfir þá erum við að glíma við þessi fjárlög núna í hárri verðbólgu (Forseti hringir.) og háum vöxtum. Eins og Seðlabankinn sjálfur og seðlabankastjóri hefur sagt þá er þetta (Forseti hringir.) fjárlagafrumvarp engan veginn að róa í rétta átt miðað við það sem Seðlabankinn sjálfur er að reyna að gera.

(Forseti (AIJ): Forseti minnir á að ræðutími er takmarkaður og þó að 40 mínútur séu ekki mikill tími þá eru það mörk.)