fjárlög 2023.
Forseti. Örlítið um fundarstjórn, en mér finnst ekki hátt hlutfall af 40 mínútna ræðu að fara aðeins yfir. En allt í lagi, forseti ræður.
Mig langaði aðeins til að spjalla við hv. þingmann um Seðlabankann sem hann byrjaði að tala um í stórum hluta sinnar ræðu. Ég alla vega upplifði það dálítið í umræðunni þegar stýrivextirnir voru að hækka smám saman að það væri bara verið að giska á hvað myndi duga og hvað ekki, að hluta að það skorti einhvers konar samspil milli þess sem Seðlabankinn var að gera annars vegar og hins vegar þess sem stjórnvöld voru að gera til að ná einhvers konar jafnvægi í peningastefnunni. Við fáum t.d. tillögur um aðhaldsaðgerðir hjá ríkisstjórninni, frestun á framkvæmdum og ýmislegt sem ég myndi ekki beint kalla aðhaldsaðgerðir þegar maður skoðar þær nánar; tilfærsla um nokkra mánuði, bara til að það dugi fram yfir áramótin sem myndi einhvern veginn hafa þessi stóru áhrif á aðhaldið og slá á þörfina til þess að hækka stýrivexti — sem það gerði síðan ekki. Stýrivaxtaákvörðunin er kynnt á þann hátt: Við höldum að þetta dugi. Mér finnst einhvern veginn að við þurfum að gera aðeins meiri og betri kröfur til bæði stjórnvalda og Seðlabankans að útskýra aðeins betur hvers vegna þurfi 6% vexti, hvar nákvæmlega lendir það í hagkerfinu til að ná fram tilætluðum áhrifum? Er það eitthvað sem stjórnvöld þurfa að koma til móts við af því að þetta leggst ójafnt á fólk sem er með mismunandi lán o.s.frv.? En nei, ekki neitt svoleiðis.