153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:01]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessar pælingar varðandi stýrivextina. Við erum í þessu umhverfi sem ég var að lýsa í ræðunni minni áðan. Við erum með verðtryggingu hér og ansi hátt hlutfall húsnæðislána sem eru með fasta vexti og reyndar líka seðlabankastjóra sem hvatti til þess á sínum tíma að fólk myndi kannski festa vextina, sem er auðvitað ekkert annað en hvatning sem lætur stýrivaxtatækið bíta síður. Þetta er auðvitað allt svolítið sérkennilegt mál af því að við erum síðan alltaf að hækka vexti til að hafa áhrif á þenslu á húsnæðismarkaði. Þetta bítur allt svolítið í skottið á sér og verður dálítið þversagnarkennt.

Ef ég skildi hv. þingmann rétt þá er verið að bregðast við með því að fresta einhverjum verkefnum, aðgerðum og einhverju slíku. Vandinn hér er kannski sá að það er svo lítið gert af því að auka skilvirknina í ríkisrekstrinum án þess þó að fara þá leið að draga verulega úr þjónustu. Það getur verið erfitt að hagræða eða breyta innan kerfa og stofnana en á mörgum stöðum felast tækifæri til að gera það. Það er hins vegar miklu erfiðara heldur en að taka einhverjar afmarkaðar framkvæmdir og slá þeim á frest eða breyta til í tíma til að bregðast við.

Svo ég komi inn á eitt sem hv. þingmaður nefnir, þá finnst mér Seðlabankinn alltaf reyna að rökstyðja nokkuð vel þessar vaxtahækkanir sínar. En auðvitað hlýtur það að skekkja myndina, a.m.k. fyrir mig þegar ég horfi á þetta utan frá, að við erum með vaxtatækið, stjórntæki sem bítur afskaplega illa út af ákveðnum kerfisþáttum sem að mínu mati fylgja því auðvitað að vera með lítinn og smáan gjaldmiðil.