153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:06]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir samtalið um vexti og fleira. Þegar Seðlabankinn var að hækka vexti var auðvitað mjög mikið einblínt á það að koma böndum, eins og það var kallað, á húsnæðismarkaðinn. Þá bíta vextirnir auðvitað þau lán sem þegar hafa verið tekin en hafa auðvitað líka að einhverju leyti áhrif á það hvort menn ætli að taka annaðhvort eitthvert viðbótarlán eða fara bara hreinlega í fasteignakaup af því að vextirnir hafa verið að hækka, kannski væri betra að bíða með það þar til þeir lækka. Við komumst aldrei hjá því að vaxtaákvarðanir hafi mögulega kælandi áhrif á markaðinn og hljóta alltaf að hafa einhver áhrif á þau lán sem þegar hafa verið tekin.

Svo við setjum okkur í spor Seðlabankans þá er ástæðan fyrir því að vextir eru hækkaðir sú að tækið á að virka. Það er til þess að bíta og kæla. Ef það gerir það ekki þá er auðvitað tilgangslaust að hækka vextina. (Gripið fram í.)

Síðan kom hv. þingmaður inn á þetta með sveiflurnar, hvort og hvenær eigi að gefa í og allt þetta. Þarna hef ég alltaf verið að nefna og fleiri í mínum flokki, sem við munum halda áfram að gera á meðan við erum í pólitík, að íslenskt efnahagsumhverfi er bara sveiflukenndara en gengur og gerist annars staðar. Við erum orðin ofboðslega vön þessu. Við erum sjálfsagt á skárri stað núna, eftir því sem fleiri stoðir koma inn í efnahagslífið, heldur en við vorum áður þegar allt snerist meira og minna um sjávarútveginn og menn voru að handstýra genginu. Það var bara ákveðið á ríkisstjórnarfundi að gengið yrði fellt um 20% um kvöldið. Við viljum auðvitað að hér verði sveiflurnar miklu minni og trúum því að það skapi einhvern stöðugleika til lengri tíma. En það þýðir auðvitað að á einhverjum ákveðnum tímabilum gæti ástandið mögulega verið verra (Forseti hringir.) heldur en ef við værum kannski enn þá með íslenska krónu — ég tek svona dæmi inn í framtíðina ef við verðum þá komin með evru, svo hv. þingmaður skilji hvað ég er að fara. (Forseti hringir.) Það má velta þessu fyrir sér á alla kanta en það er a.m.k. eilífðarviðfangsefni á Íslandi hvernig við tökumst á við vextina.