fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir góða ræðu þar sem hann stiklaði á mörgu, m.a. stórmálum hér í samfélaginu. Það er ekkert leyndarmál að staðan er erfið og tímarnir eru erfiðir, þá sérstaklega núna í ljósi stýrivaxtahækkana Seðlabankans og verðbólguþróunarinnar sem hefur átt sér stað. Ég kem kannski nánar inn á það í seinna andsvari mínu jafnvel þó að hv. þingmaður sé búinn að tala svona mikið um vexti. En ég staldraði svolítið við þann hluta ræðunnar þar sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom inn á stríðið sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur boðað gegn glæpum og ofbeldi og skipulagðri brotastarfsemi. Ég ætla bara að fá að segja að ég er sammála hv. þingmanni um þá punkta sem komu fram í ræðu hans. En svo er náttúrlega líka staðreyndin sú að svona hegðun, ofbeldisfull hegðun og svona glæpir og svona manneskjur, verður ekki til í tómarúmi heldur er oft einhver ástæða að baki, hvort sem hún er samfélagsleg eða ekki eða vegna áfalla sem leiða fólk út í glæpi, eins leiðinleg staðreynd og það er. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála því sem ég talaði svolítið mikið um í umræðu um fjárlög varðandi það að beina sjónum líka eitthvert annað. Það á ekki bara að vopnvæða lögregluna, ekki bara gefa lögreglunni auknar heimildir, eftirlitsheimildir og eitthvað svoleiðis, heldur þarf líka að efla félagslegu kerfin og styrkja þennan hóp til að sjá til þess að fólk leiðist ekki út í glæpi til að byrja með. Það þykir mér vera alvöruforvörn og raunverulega forvirk aðgerð, ekki bara í því að vopnvæða lögregluna. Ég vildi bara spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála þeirri nálgun sem ég hef að miklu leyti.