fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er mjög gaman og áhugavert að eiga samtal um þetta í þingsal. Ég færði þetta í tal í sérstökum umræðum um þetta málefni þar sem hæstv. dómsmálaráðherra var til andsvara og gagnrýndi þá hæstv. ráðherra fyrir að nota þetta hugtak, að vera í stríði gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Það er svo auðvelt að segja þetta. Það er svo auðvelt að fylkja fólki á bak við þig af því að þú ert að fara í eitthvert stríð og meira að segja gegn glæpamönnum.
Ég gagnrýndi orðanotkunina og fékk til baka frá hæstv. ráðherra að það væri augljóst að ég vildi bara setjast niður með glæpahópunum, bjóða þeim upp á kaffi og reyna að semja við þá, eins og það sé enginn millivegur, eins og hlutirnir séu annaðhvort kaffiboð eða stríð. Það sé ekki allt þetta samtal t.d. sem við erum að eiga um forvarnir, um mögulega einhvers konar annars konar nálgun: annars konar efling löggæslu og þar fram eftir götunum. Það verði alltaf að vera eitthvert stríð. Svona hugtakanotkun skemmir bara fyrir. Stríðið gegn fíkniefnum, hvar er það? Hver vann það stríð? Hvenær byrjaði það og hvenær endar það? Getur einhver svarað þessu? Nei, auðvitað ekki. Þetta eru bara einhver orð sem fólk notar í einhvers konar pólitískum tilgangi vegna þess að þetta hljómar svo vel. En það er hins vegar engin sérstök innstæða fyrir því. Og það er nú þess vegna sem ég var að nefna og draga fram þversögnina í þessu, að á sama tíma og talað er um að menn séu að bæta rosalega í fjárheimildir til fangelsismála og lögreglu, sem er þó ekki að gera neitt nema að halda í horfinu eitthvað skammt aftur í tímann eftir áratuga svelti — þetta fer bara ekki saman. Ég heyri að ég og hv. þingmaður erum alveg sammála um að það þarf kannski aðeins aðra nálgun í þessu. Það þýðir hins vegar ekki að maður vilji ekki berjast gegn glæpum, auðvitað ekki. Hver vill það ekki? En hver er skilvirkasta leiðin til að berjast gegn glæpum? Það er ekkert endilega alltaf að draga upp byssur.