dagskrártillaga.
Forseta hefur borist eftir farandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Ég geri það að tillögu minni í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga að fyrst á dagskrá næsta fundar verði 568. mál, um breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007, eingreiðsla, frá velferðarnefnd. Síðan komi þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd. Ef til þess kemur að þingið þurfi að verja miklum tíma um frumvarp um útlendinga, sem hlýtur að teljast líklegt í ljósi þess hversu umfangsmiklar athugasemdir hafa verið gerðar við frumvarpið, er ástæða til að hafa áhyggjur af því að afgreiðsla annarra mála tefjist. Afar skammt er eftir af starfsáætlun Alþingis og mörg þeirra mála sem bíða eru viðkvæm í tíma, en umrætt frumvarp um útlendinga er það svo sannarlega ekki og engin knýjandi þörf á að ljúka afgreiðslu þess fyrir áramót.
Mikilvægt er að sama skapi að mál 568, um eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, verði afgreitt af Alþingi án tafar. Málið er lagt fram í þverpólitískri sátt af velferðarnefnd og því engin ástæða til að láta þiggjendur eingreiðslunnar bíða eftir henni. Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf ritar Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.
Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.