almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Við erum öll sammála um að við viljum að allir hafi það gott í okkar þjóðfélagi. Það er ótvírætt að við erum sammála þar. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á málefni örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, að það verði tekið til endurskoðunar með það að markmiði að bæta lífskjör og lífsgæði einstaklinga með mismikla starfsgetu. Þarna er hópur sem þarf að grípa en við þurfum að klára þetta mál hér og nú. Við getum verið sammála um það að það hefur oft setið á hakanum og hefur alltaf setið á hakanum að taka þessa heildarendurskoðun og gera það almennilega. En nú fyrst erum við að stíga stöndug og stöðug skref í þá átt að gera þetta vel.