almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir andsvarið og vil árétta að ég talaði um starfsgetumissi en ekki starfsgetumat í ræðu minni hér áðan. Ég er ekki að segja að það réttlæti eitt né neitt að ákveðinn þjóðfélagshópur hafi það verr, að við séum að skoða kerfið í heild sinni til að reyna að gera betur, ekki bara núna fyrir jólin heldur til framtíðar. Ég er að segja að við þurfum að stíga þessi skref og gera það vel. Ríkisstjórnin er að gera það. Við erum að reyna að koma þessu kerfi í heild sinni þannig fyrir að við grípum þá hópa sem þurfa hvað mest á því að halda og þar undir er m.a. þessi hópur sem hv. þingmaður vísar til. Ég ætla að vera fullkomlega hreinskilin í þessum þingsal og auðvitað þurfum við að grípa fleiri hópa, en hér er um að ræða akkúrat þetta tiltekna mál fyrir fólk sem er með örorku. Þetta er eingreiðsla til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Það er málið sem við erum að ræða hér.