almannatryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í fyrsta lagi, liggur það þá ekki í orðum hv. þingmanns hér áðan í ræðu að um sé að ræða starfsgetumat? Er það rangt? Í öðru lagi er ég komin fram með breytingartillögu við nákvæmlega þetta frumvarp. Þar óska ég eftir að verði tekið utan um þennan langfátækasta hóp eldra fólks og að hann fái sambærilega eingreiðslu fyrir jólin og öryrkjar. Mun ég mæla fyrir þeirri breytingartillögu hér á eftir. Þá er spurningin þessi: Mun ekki hv. velferðarnefnd og hæstv. ríkisstjórn verða ofboðslega glöð og hreinlega skipta kannski um skoðun? Er það kannski ekki vilji allra hér að skilja ekki þessa fátækustu einstaklinga út undan? Svo það sé sagt þá munum við ekki gefast upp í Flokki fólksins og berjast til síðasta blóðdropa fyrir þennan þjóðfélagshóp.