almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir ötula baráttu sína í þágu þessa fólks og ég tel að það skipti máli að öflugur málsvari þess sé inni í þessum þingsal. Ég vil ítreka að mér finnst hv. þingmaður standa sig einstaklega vel í að halda uppi þeirri réttindabaráttu. Ég þakka hv. þingmanni fyrir það.
Eins og áður hefur komið fram í þessum þingsal þá er það þannig að þegar endurgreiðslurnar voru teknar upp fyrir um tveimur árum síðan voru þær ekki síst rökstuddar með því að um væri að ræða sérstaka uppbót fyrir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, þar sem ekki var búið að laga greiðslukerfi þeirra. Þessi heildarendurskoðun og uppstokkun á málaflokknum og kerfinu hefur ekki farið fram líkt og er búið að gera fyrir ellilífeyrisþega. Það verður því að segjast eins og er að það er kannski ólíku saman að jafna í þessum málum og ég dreg ekki úr því að ellilífeyrisþegar þurfi líka að borða. Eins og hv. þm. Jóhann Páll kom hérna inn á áðan þá borðar enginn heildarendurskoðun, en við þurfum að klára þetta mál hér fyrst. Svo förum við að ræða hitt.