153. löggjafarþing — 46. fundur,  10. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[11:10]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Það er fínt að fá þetta mál á dagskrá strax svo hægt sé að afgreiða það hratt og vel. Nokkur orð sem við þurfum að hafa í huga fyrir daginn í dag og næstu daga og líka næstu ár: Hér er talað um heildarendurskoðun en einmitt, eins og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson orðaði það, þá borðar fólk ekki heildarendurskoðun. Mér finnst rosalega áhugavert hvernig heildarendurskoðun er stundum notuð til þess að réttlæta eða „ranglæta“ einhverjar breytingar. Við erum t.d. með heildarendurskoðun á stjórnarskránni tilbúna. Nei, það má ekki, þá megum við bara gera smábreytingar og vinna okkur upp, þá má ekki gera heildarendurskoðun. En hérna þar sem þarf að gera nauðsynlegar smábreytingar má ekki gera neitt af því að við erum að bíða eftir heildarendurskoðun. Það er bara valið eftir því hvað hentar, sem er mjög áhugavert, sérstaklega í þessu tilfelli þar sem, þegar allt kemur til alls, þetta snýst bara um eitt mjög einfalt mál, ráðstöfunartekjur. Það er ekki flóknara en það. Hverjar þurfa ráðstöfunartekjurnar að vera til að duga a.m.k. fyrir framfærslu? Er þetta mikið flóknara en það þegar allt kemur til alls? Þetta er bara einföld spurning. Hversu mikið þarf í rauninni að klóra sér í hausnum og smíða eitthvert lagaverk til að tryggja það? Stjórnarráðið er með reiknivél fyrir framfærsluviðmið, án húsnæðis að vísu. Það er mjög flókinn liður, húsnæðisliðurinn, bara út af ákveðinni stefnumótun hjá stjórnvöldum á undanförnum árum sem hefur látið þann lið rjúka upp, hann heldur ekki í við ýmislegt annað eins og heimilisuppbót o.s.frv. Það eru önnur hliðarkerfi sem dekka það aðeins á móti en samt er þetta flókið.

Grunnurinn að þessu vandamáli, ef maður getur orðað það sem svo, er 69. gr. laga um almannatryggingar, nákvæmlega sú grein. Þar er talað um hinn svokallaða tvöfalda lás. Það snýst um, eins og hefur komið fram í ræðum annarra hv. þingmanna, hvort sé hærra, verðbólga eða launaþróun, og við það á að miða til þess að fólk sem er á lægstu framfærslunni dragist ekki aftur úr, a.m.k. ekki hvað verðlagsþróun varðar því allur peningurinn sem þau nota fer í vörur sem verðlagsþróun mælir, þau eru ekkert að safna sér fyrir einhverjum lúxusferðum, dýrum bílum og stórum íbúðum og svoleiðis. Það virkar ekki þannig. Þetta er alger lágmarksframfærsla sem við erum að tala um og í raun undir henni. Hitt er síðan launaþróun, sem er náttúrlega mikilvæga viðmiðið. Launaþróunin hefur yfirleitt verið meiri en verðlagsþróun á undanförnum árum, meiri hækkun þar. Það er örsjaldan sem það snýst við, gerist líklega nú árið 2022 út af hárri verðbólgu. Þá er einmitt gott að tekin var ákvörðun hjá ríkisstjórninni um að bæta verðbólgumuninn upp í fjárlögum fyrir árið 2022 sem gerðu ráð fyrir miklu lægri verðbólgu en varð. Það er því búið að bæta því við, nokkurn veginn afturvirkt eða alla vega þannig að þegar næsta ár byrjar er miðað við að framfærslan sé samkvæmt verðbólguþróun.

Þetta finnst mér rosalega merkileg breyting því að þetta var ekki svona. Það var í fyrsta sinn á síðasta ári sem þetta var gert. Þá voru fjárlögin aðlöguð upp í vanspáða verðbólgu fyrir síðasta ár, ekki launaþróun. Launaþróun var þar hærri. Það mátti ekki. Enda er launaþróun líka rosalega óljóst orð lagalega séð. En það er enginn að reyna að gera það að skýru hugtaki lagalega séð, sem er mjög spes. Afsökunin fyrir þessu hefur dálítið verið sú að í lögum um almannatryggingar segir bókstaflega að það eigi að reikna bætur almannatrygginga, lífeyrinn, einu sinni á hverju ári, árlega. Fjármálaráðuneytið segir bara: Nei, við megum bara gera þetta einu sinni á ári og stjórnvöld segja bara: Ó, ansans, þá getum við ekki lagað það sem við spáðum áður um, vanspáðum, en leiðinlegt. En þau eru búin að sýna okkur og núna í annað skipti, fyrir árið 2023, þetta var gert fyrir árið 2022, að þetta er alveg hægt. Það þarf bara pólitískan vilja til að segja: Fyrirgefið, þetta var bara rangt reiknað, við skulum leiðrétta það. Það er svipað og verið er að gera vegna lífeyrisaukasjóðs LSR, þar var vanreiknað og á að bæta það. En ekki eins og verið er að gera hvað varðar málefni fatlaðra hjá sveitarfélögunum. Nei, við vanreiknuðum ekkert um 12–13 milljarða þar, við skulum sætta okkur við 5 milljarða. Það er rosalega mikið úr lausu lofti gripið einhvern veginn hvernig viðbrögðin eru. Það er svo mikill stöðugleiki hérna. Við getum ekki gert allt alveg eins. Það er ekki það sem stöðugleiki þýðir. Alveg rétt, fyrirgefið. Ég ætla ekki að rugla fólk meira með þessu en þetta er vandamálið. Það er mjög handahófskennt hvað er gert til að grípa vandamál sem eru keimlík. Í þessum málaflokki, þangað til fyrir árið 2022, hafði aldrei verið gripið sérstaklega inn í og endurreiknað vegna þess að vanspáð hefði verið um verðbólguþróun. Núna þarf bara að taka pólitíska ákvörðun um að það gildi fyrir launaþróun. Það er greinilega hægt. En stjórnvöld hafa ekki gert það.

Það kaldhæðnislega við þetta allt er að ef þessi tvöfaldi lás hefði alltaf virkað frá því að hann var settur þá værum við með framfærslu, ráðstöfunartekjur, sem t.d. Flokkur fólksins er að leggja til að sé grundvöllur, 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Það væri u.þ.b. það eftir skatta. Þetta er ekkert rosalega flókið, er ekkert rosalega flókin tillaga. Ég held að það að hafa þetta 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust sé flóknara þegar allt kemur til alls af því að það er verið að blanda saman við launatekjur og þá er þetta komið í tvöfalt kerfi o.s.frv. En ef ráðstöfunartekjurnar væru þær sem 69. gr. segir til um, með því að fylgja tvöfalda lásnum, þá væri þetta nákvæmlega þar. Það þarf ekki að vera flóknara en þetta. Heildarendurskoðun er ekki flóknari en þetta. Jú, jú, það eru einhverjar stillingar á húsnæðisuppbót og vegna barna og ýmislegt svoleiðis en það er ekki eitthvað sem við eigum að missa svefn yfir og flækja okkur í og fresta í einhver ár, bara af því að við náum ekki heildarsýn yfir þetta. Það munar einhverjum krónum til eða frá í stóra samhenginu.

Mér finnst þetta mál áhugavert á þann hátt að það er gott að hafa sögulegt samhengi í þessum málum nákvæmlega. Á síðasta kjörtímabili var lofað 4 milljörðum í þessar kerfisbreytingar sem urðu síðan aldrei, það náðist aldrei sátt um hverjar þær ættu að vera. Það sem sátt náðist um var að minnka krónu á móti krónu skerðinguna. Það kostaði 2,9 milljarða, minnir mig. Þetta varð að krónu á móti aurum skerðingu. Eftir voru 1,2 milljarðar, eitthvað því um líkt, sem var þá ekki búið að ráðstafa í kerfisbreytingar. Það sem gerðist um áramótin, þegar þetta var gert, var að það átti eftir að úthluta þessum 1,2 milljörðum sem voru til í fjárlögum. Þá voru þeir notaðir í eingreiðslu. Hérna eru 1,2 milljarðar sem var búið að lofa ykkur, við vitum ekki hvar við ætlum að setja þá inn í kerfið en við vorum búin að lofa einhverjum pening: Gjörið svo vel, eingreiðsla í desember.

Við erum stödd þar nákvæmlega núna. Þetta er nákvæmlega sami peningur og hefur verið í þessari eingreiðslu alla desembermánuði síðan. Er það ekki dálítið kaldhæðnislegt? Við erum ekki að gefa neitt aukalega til öryrkja hvað þetta varðar. Við erum að staðfesta það að þessir 1,2 milljarðar, þeir voru það alla vega þá, eigi að halda áfram að vera hluti af þeirra kjörum, sem var fyrir löngu búið að lofa. En við þurfum alltaf að laga það með einhverri tímabundinni breytingu á hverju ári síðan þá af því að þessi kerfisbreyting, heildarendurskoðunin sem enginn getur borðað, er ekki enn þá búin að eiga sér stað. Og af hverju eigum við að trúa því að hún komi eða að það verði einhver sátt um hana í kjölfarið? Ég veit það ekki. Maður sér það alla vega ekki í hendi sér eins og er. En höfum í huga að nákvæmlega þessi lagabreyting er að staðfesta enn og aftur að peningur sem er til, en er ekki búið að koma fyrir einhvers staðar í kerfinu, eigi að fara til fólksins sem var búið að lofa að hann færi til. Þetta er nú ekki mikið meira mál en það.