153. löggjafarþing — 46. fundur,  10. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[11:20]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég verð að segja að ég gleðst af öllu hjarta yfir því að þingheimur allur hafi náð utan um það að greiða þessa eingreiðslu, þessa desemberuppbót, til öryrkja upp á 60.300 kr., skatta- og skerðingarlaust. Ég er ekki enn þá með svarið við því hvort þetta muni nokkuð koma í bakið á þeim hvað lýtur að húsaleigubótum eða einhverju slíku. Ég veit að þetta skerðir ekki neitt af greiðslum sem eru innan kerfis hjá okkur en hvort það hafa verið gerðar einhverjar ráðstafanir hvað varðar félagslegan stuðning sveitarfélaga, sem skerða strax og þau mögulega geta, það hins vegar veit ég ekki um en það er eitthvað sem við þurfum að skoða betur núna þegar málið kemur til 2. umr.

Hins vegar er ég búin að vera alveg í forundran yfir því hvernig er hægt að skilja eftir þann hluta af almannatryggingaþegum sem þarf ekki síður á þessari eingreiðslu að halda um jólin. Ég næ engan veginn upp í það. Ég tala hér um eldra fólk sem býr í sárri neyð, sem var öryrkjar áður. Mörg hver þau sem hafa það bágast hafa verið að missa framfærsluhluta sinn hvað lýtur að aldurstengdri örorkuuppbót vegna þess að þau eru ekki öryrkjar þegar þau verða 67 ára, ekki öryrkjar lengur. Þarna getur munað tugum þúsunda á mánuði fyrir þessa einstaklinga.

Ég legg hér til breytingartillögu. Mér finnst vera bragur á því að nú þegar málið er að koma hér inn til okkar og það er virkilegur vilji til þess að koma því í gegn — og þá vil ég líka segja að þrátt fyrir að dagsetningin á málinu sé 31. desember þá getum við alveg verið viss um að það er góður vilji hér, allra í þinginu, að greiða öryrkjum þetta út fyrir jólin eins og var gert í fyrra. Auðvitað var það seint gert, á Þorláksmessu. Auðvitað þekki ég það hvað það er bágt að geta ekki undirbúið sig eða gert nokkurn skapaðan hlut nokkrum dögum fyrir jól. En ég er að vona samt sem áður að þetta nái fram að ganga fljótlega í næstu viku þannig að Tryggingastofnun sé ekkert að vanbúnaði að greiða þetta út.

Mig langar að koma með pínulitla reynslusögu af sjálfri mér. Það eru ekki mörg ár, það var sennilega bara veturinn áður en ég varð þingmaður, öryrkinn á ofurlaunum sem ég er — ég á fjögur börn og það er alltaf hjartað að fá að taka utan um börnin sín og vera saman, fjölskyldan, á hátíð ljóss og friðar, geta glaðst saman yfir góðum mat og drykk, spilað Trivial eða eitthvert skemmtilegt spil og hlegið og haft gaman saman. Ég hef alltaf verið mikið jólabarn en það var ömurlegt á þessum tíma að sjá fram á það að ég gat ekki boðið upp á neitt annað en það sem ég átti í kistunni. Ég gat ekki boðið upp á neitt annað en fiskinn sem var búið að færa mér eða eitthvað annað, ég átti enga peninga. Ég var búin að borga leiguna, það er alltaf það fyrsta sem þú borgar, það er húsaleigan. Passaðu að hafa þak yfir höfuðið fyrir börnin þín. Þú verður að hafa skjól.

En ég var lánsöm að því leyti til að einn af mínum yndislegu sonum sem kom í heimsókn til pabba og mömmu rétti mér akkúrat 60.000 kr. og sagði: Mamma, ég vil fá að bjóða okkur í mat um jólin. Það var í rauninni erfitt að þiggja það. Ég sagði: Láttu nú ekki svona, ekki að ræða það. Hann sagði: Ég á nóg af peningum en þið ekki og ég vil fá að bjóða okkur í mat um jólin. Þið hafið fætt mig og klætt fram að þessu og nú er komið að mér. — Æi, fyrirgefið. Það er málið, ég má aldrei tala um dæmisögur, þá fer ég alltaf í einhverja sorg.

Svo eru það líka ömmur og afar, sárafátækt fólk sem biður aldrei um neitt, þau eru lítillát, biðja aldrei um neitt. Þau treysta sér ekki einu sinni til að leita sér hjálpar hjá hjálparstofnunum. Gamall vinur minn — þau búa ein, fullorðin hjón — var að segir mér það núna: Inga, veistu, það kostar yfir 900.000 kr. að laga munninn á konunni minni þannig að hún geti fengið tennur, hún er búin að fara í aðgerð og allt, við eigum ekki þessa peninga og Sjúkratryggingar greiða okkur rosalega lítið til baka. Þetta fólk myndi muna um það að fá 60.000 kr. fyrir jólin.

Þannig að breytingartillaga mín við þetta frumvarp, fallega frumvarp ríkisstjórnarinnar — sem mér finnst bara vera hálfkarað vegna þess að þetta er jú hópur sem er að lifa á sama kerfinu, kerfi sem á að heita almannatryggingakerfi og þau tala svo gjarnan um að þau vilji gera svo vel við fólkið og það eru svo falleg markmiðin í fjárlögunum og allt þetta að maður bara trúir því varla hvað orðin verða falleg á blaði þegar þau fljúga um. En í rauninni er ekkert að marka þau nema að litlu leyti. En ég mæli hér fyrir breytingartillögu við þetta frumvarp um að við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi:

Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir 6.000 ellilífeyrisþegar sem lökust hafa kjörin og eiga rétt á greiðslu ellilífeyris skv. 17. gr. á árinu 2022 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 60.300 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2022, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.

Ég bara get ekki talað lengur, ég er orðin svo sorgmædd yfir öllu þessu. Ég skil ekki af hverju við látum svona og af hverju við erum ekki góð við þá sem eiga bágt og eru að biðja okkur um hjálp, kusu okkur á þing til að vinna fyrir sig. Mér er þetta algjörlega óskiljanlegt, virðulegi forseti, og þar sem ég er algerlega gjörsamlega orðin niðurbrotin ætla ég að hætta núna.