almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir hennar ræðu. Ég hjó aðallega eftir þessari fyrirspurn hennar um hvernig uppreikningi á framfærslu í mismunandi kerfum er háttað. Er hún ekki sammála mér í því að það er dálítið furðuleg aðferð, virðist vera svolítið happa og glappa, vegna þess að það er ekkert samræmi milli þeirra, ekkert samræmi heldur innan kerfisins sjálfs, hvort það heitir umboðsmaður skuldara eða eitthvað annað? Öll kerfin virðast bara hafa fundið út einhverja tölu. Ég rakst einmitt á þetta þegar ég fór að spyrja hvernig frítekjumark almannatrygginga væri fundið út, hvað lægi á bak við það, hvernig það væri reiknað út, hvers vegna það væri þessi tala en ekki hin. Það er bara eins og þetta hafi dottið ofan úr skýjunum. Það er eins og enginn hafi áttað sig á því og það virðist ekki vera hugsað: Bíddu, við reiknum þetta út, sem á nú ekki að vera mjög flókið. Við höfum rekist á það t.d. í sambandi við málefni fatlaðra, þegar þau voru flutt yfir til sveitarfélaganna, að þar hafa allir einhvern veginn reiknað kolvitlaust sem átti í sjálfu sér að vera mjög einfalt mál. Í þessu kerfi virðist líka alltaf reiknað vitlaust. Ég spyr: Er það ekki svolítið skrýtið að við skulum vera með svona kerfi þar sem sveitarfélögin borga ákveðinn hluta og ríkið borgar ákveðinn hluta — ég veit að neysluviðmiðið var reiknað út, ég held að það hafi verið þegar Guðbjartur Hannesson var velferðarráðherra, en það hvarf. Það var, held ég, í fyrsta skipti sem ég man eftir réttu neysluviðmiði. Ég spyr hvort hv. þingmaður muni eftir því, af því hún var sennilega á þingi þá. Hvers vegna er ekki búið að reikna út rétt neysluviðmið?