almannatryggingar.
Frú forseti. Ég vil taka undir þau sjónarmið sem komu fram í ræðu hv. þm. Loga Einarssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, hér áðan. Það er fagnaðarefni að Alþingi sameinist um þessa eingreiðslu og henni sé veitt lagastoð með þeim hætti sem birtist í þessu frumvarpi. Ég kom inn á það í andsvari hér áðan að það truflar mig að fólk sem er með skerta starfsgetu og hefur verið á örorku drjúgan hluta ævinnar en er orðið 67 ára sé skilið eftir og ég hvet hv. velferðarnefnd til að huga að því við vinnslu málsins hvort unnt sé að bæta úr þessu. Í mínum huga felst í þessari eingreiðslu sem kemur til viðbótar lögbundinni desemberuppbót, sem kemur svo rækilega til skerðingar að ég held að fæstir öryrkjar taki sérstaklega eftir henni, mjög mikilvæg viðurkenning okkar á Alþingi á því að almannatryggingakerfið virkar ekki eins og það á að virka. Það rís ekki almennilega undir því hlutverki að verja lífsafkomu tekjulægsta fólksins. Þess vegna þarf alltaf að vera að plástra það. Hvernig getum við hér inni réttlætt það fyrir okkur að óskertur lífeyrir manneskju sem hefur fengið örorkumat 40 ára sé aðeins 301.000 kr. á mánuði fyrir skatt? Hvernig er hægt að réttlæta það að óskertur örorkulífeyrir sé tugþúsundum lægri en lágmarkslaun í landinu? Þetta er óverjandi staða og ég held að þingmenn allra flokka hér inni viti það.
Staðreyndin er nefnilega sú að öryrkjar sitja fastir í skerðingarfrumskógi. Kjör þeirra hafa dregist aftur úr kjörum á almennum vinnumarkaði, þvert á ákvæði 69. gr. almannatryggingalaga, ákvæðinu um þennan svokallaða tvöfalda lás, að ákvörðun þessara greiðslna skuli fylgja almennri launaþróun og í það allra minnsta fylgja verðlagi.
Kolbeinn H. Stefánsson félagsfræðingur hefur bent á að hámarksgreiðslur Tryggingastofnunar til öryrkja með heimilisuppbót væru í dag 116.000 kr. hærri í hverjum mánuði ef 69. gr. almannatryggingalaga hefði í raun og veru verið fylgt, þ.e. ef við miðum við lágmarkstekjutryggingu á almennum markaði. Hámarksgreiðslurnar væru tæplega 80.000 kr. hærri ef við horfum bara til launavísitölu Hagstofunnar. Og án heimilisuppbótar, ef við skoðum það, væru hámarksgreiðslurnar um 112.000 kr. hærri miðað við lágmarkstekjutryggingu og tæplega 81.000 kr. hærri ef við miðum við launavísitölu.
Nú hefur komið fram í fréttum að mikill fjöldi öryrkja reiðir sig á matargjafir og öryrkjum sem leita til umboðsmanns skuldara vegna fjárhagsvanda hefur fjölgað. Meðalgreiðslugeta þeirra samkvæmt gögnum stofnunarinnar er engin. Hún er 3.500 kr. í mínus eftir að greitt hefur verið fyrir mat, húsnæði og aðrar nauðsynjar. Verðbólgan bítur þetta fólk auðvitað sérstaklega fast, þessa tekjulægri hópa, en samt ætlar ríkisstjórnin að skerða þessa eingreiðslu um helming og réttlætir það með vísan til hækkunar á greiðslum almannatrygginga í sumar sem verðbólgan er nú þegar búin að éta upp. Þannig var þetta nefnilega þegar frumvarp til fjáraukalaga kom fyrst fram og öryrkjar látnir bíða milli vonar og ótta í margar vikur. Mér finnst það gjörsamlega óþolandi að ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn leiki sér með tilfinningar fólks með þessum hætti en engu að síður fagnar maður því að nú sé að nást samstaða um þetta. Ég minni bara á að það er skylda okkar hér inni að standa vörð um félagsleg réttindi fólks og standa vörð um mannsæmandi framfærslu alla mánuði ársins. Það er siðferðileg skylda okkar hér á Alþingi. Við eigum að tryggja að almannatryggingakerfið okkar mæti þeim kröfum sem við hljótum að gera í velferðarþjóðfélagi á 21. öld.