153. löggjafarþing — 46. fundur,  10. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:51]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar sitt. Þetta með að við þurfum ekki að vera tengd til að selja upprunaábyrgð er vissulega áhugavert álitaefni. Eins og ég sagði þá er ég ekki dómari og hef bara mína skoðun sem þingmaður. Raforka er fullkomlega skiptanleg vara, skiptir ekki máli hvort ég kaupi raforku frá hv. þingmanni eða úr kjarnorku, kolum eða vindmyllu. Þetta er allt raforka. Það er enginn gæðamunur á raforkunni eftir því hvaðan hún kemur.

Ég tel hins vegar að þegar við skrifuðum undir EES-samninginn vorum við að skrifa upp á samstarf í orkumálum en ekki um að ganga inn í orkusamband ESB. Það er kveðið á um markmið orkusambands ESB í 194. gr. Lissabon-sáttmálans frá 2009, 25 árum eftir að EES-samningurinn tók gildi. Við sömdum aldrei um Lissabon-sáttmálann en hins vegar þurftu öll ESB-ríki að samþykkja Lissabon-sáttmálann. Þjóðaratkvæðagreiðslur voru haldnar í Írlandi, Hollandi og gott ef ekki í Danmörku líka. Líka hafa verið þjóðaratkvæðagreiðslur um Amsterdam-sáttmálann og fleiri sáttmála þar sem verið er að uppfæra stofnsáttmála ESB, en EES-ríkin hafa ekkert um það að segja. Svo er verið að dæla á okkur tilskipunum sem eru ekki í samræmi við upphaflega EES-samninginn. Það er algerlega óásættanlegt.

Varðandi orkumálin þá hefði Ísland aldrei samþykkt að ganga í orkusamband ESB á sínum tíma, aldrei. Varðandi þessi markmið og prósentur sem hann nefndi að við þurfum að ná fyrir 2037 og áfram þá munum við aldrei ná þessum markmiðum. Ég hef ekki nokkra trú á því. Við eigum hins vegar að gera okkar besta til að standa okkur í loftslagsmálum og eigum að setja okkur markmið um að ná alþjóðlegum skuldbindingum okkar samkvæmt Kyoto- og Parísarsamkomulaginu. Það eiga að vera markmið okkar. Við munum hins vegar ekki hafa neina úrslitaþýðingu varðandi loftslagsmál í heiminum. Það munu verða Bandaríkin og Kína en ekki við. Við eigum að gera þetta á okkar forsendum og gera okkar besta. Það er erfitt að gera betur en sitt besta og ekki hægt að mínu mati.