almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, frítekjumark og skerðingarhlutfall.
Flokkur fólksins hefur lengi barist fyrir því að dregið verði úr skerðingum almannatrygginga. Við viljum hvetja til atvinnuþátttöku öryrkja í stað þess að refsa þeim öryrkjum sem sýna framtakssemi. Það er jákvætt að nú loksins ætli ríkisstjórnin að hreyfa við frítekjumarki atvinnutekna. En því má ekki gleyma að umrætt frítekjumark hefur staðið í stað síðan 2009 og það í krafti meirihlutavalds ríkisstjórnar síðustu fimm árin. Ef upphæðin hefði tekið breytingum til samræmis við launaþróun væri frítekjumarkið í dag rúmlega 250.000 kr. á mánuði. Þá munu atvinnutekjur öryrkja áfram skerðast strax frá fyrstu krónu og það þrátt fyrir hækkun frítekjumarksins. Sérstaka framfærsluuppbótin, sem kveðið er á um í lögum um félagslega aðstoð, skerðist með tilliti til allra atvinnutekna öryrkja og ekki gilda um hana nein frítekjumörk. Hver einasta króna sem öryrkjar hafa í atvinnutekjur skerðir framfærsluuppbótina um 65 aura. Ef við ætlum að taka á skerðingarkerfinu af alvöru og hvetja öryrkja til atvinnuþátttöku verðum við að tryggja að frítekjumarkið nái yfir alla greiðsluflokka.
Minni hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu sem færa frítekjumarkið upp til samræmis við launaþróun, í 250.000 kr. á mánuði, og leggur jafnframt til að frítekjumarkið nái framvegis einnig til sérstöku framfærsluuppbótar laga um félagslega aðstoð.
Minni hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
1. Í stað „2.400.000 kr.“ í 2. gr. komi: 3.000.000 kr.
2. Á eftir 2. gr. komi nýr kafli, II. kafli, Breytingar á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með einni nýrri grein, svohljóðandi.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 9. gr. skal lífeyrisþegi hafa 3.000.000 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning sérstakrar uppbótar á lífeyri.
Á mannamáli þýðir þetta einfaldlega að það eru sennilega nálægt því að vera um 8.000 manns, það eru síðustu tölur, eru kannski ekki nákvæmlega réttar en nálægt því, sem fá eitthvað af sérstöku framfærsluuppbótinni. Eins og staðan er er þetta fólkið sem á enga möguleika á að fara að vinna fyrir launatekjum öðruvísi en að verða fyrir skerðingu. Það er mjög ósanngjarnt þegar við ætlum virkilega að virkja öryrkja til vinnu að taka einn hóp út og segja: Þið fáið ekki að vera með. Sjáum til þess, bara með þessum breytingum, að þeir verði með. Þetta kostar ekki og gleymum því ekki að það er alltaf verið að tala um að það kosti eitthvað að gera þetta. Tökum bara dæmi. Öryrki sem er núna heima með frítekjumark og framfærsluuppbótina og hann fær greiðslurnar mánuð eftir mánuð. Síðan fer hann að vinna af því að hann sér að framfærsluuppbótin skerðist ekki. Kostar það ríkið eitthvað? Nei, ríkið er alltaf að borga honum hvort sem er. En um leið og hann fer út fær hann launatekjur og þá eru skattar, það er útsvar, það kemur jafnvel tekjuskattur inn á móti. Þetta er plús. Það er enginn kostnaður. Þetta er bara spurning um það hvort ríkið geri kannski eitthvað minnkað útgjöldin, og í þessu tilfelli eiga ekki að vera útgjöld, í þessu tilfelli eigum við að horfa á þetta. Þeir sem fá framfærsluuppbót eru nefnilega verst setta fólkið í kerfinu. Ef við viljum ekki ná til verst setta fólksins í kerfinu, til hvers erum við þá yfir höfuð að reyna að fá fólk til að vinna sem getur unnið og vill vinna pínulítið? Við vitum það vel sjálf hér inni að við myndum ekki vera í þessari vinnu ef við sæjum fram á það að hver einasta aukakróna sem kæmi inn, segjum að þessu væri skipt upp eins og í kerfinu hjá okkur, væri alltaf skert stórlega í hvert skipti sem við værum að reyna að bjarga okkur. Það fer enginn í vinnu ef ávinningurinn er kannski ekki nema 20.000 kr. af hverjum 100.000 kr. 80% skattar og skerðingar er fáránlega mikið og er ekki hvetjandi til eins eða neins nema til þess að hvetja fólk til að gera ekkert. Breytum þessu.