153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

endurskoðun sauðfjársamnings.

[15:04]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Samfylkingin vill að sjálfsögðu sjá ákveðnar breytingar í sauðfjárrækt og það vilja sauðfjárbændur líka, ekki síst unga fólkið í greininni. Það veit að breytinga er þörf. En við megum ekki ráðast í breytingar þannig að það dragi með skyndilegum hætti úr afkomuöryggi fólks á erfiðum tímum og veiki um leið sérstaklega stöðu ungra sauðfjárbænda. Sú staða virðist nú vera komin upp, virðulegi forseti, ef fyrirætlanir hæstv. matvælaráðherra ná fram að ganga. Í sauðfjársamningnum árið 2016 var samþykkt að leggja niður greiðslumark í sauðfjárbúskap í þrepum og færa greiðslur í staðinn yfir í almennari stuðning. Það er gott og gilt markmið, en í samningnum voru sett fram ákveðin markmið sem hafa ekki náðst; um aukna verðmætasköpun og útflutningstekjur af íslenskri sauðfjárrækt. Þar stóð, með leyfi forseta: „Takist það ekki skal niðurtröppun beingreiðslna endurskoðuð.“ Þetta endurskoðunarskilyrði skiptir máli og var eðlileg forsenda, enda greiðslumarkið eins konar afkomutrygging, kerfi sem bændur hafa keypt sig inn í og tryggir þeim ákveðnar greiðslur óháð markaðsaðstæðum. Samningurinn var endurskoðaður 2019 og þá var fallið frá niðurtröppun á greiðslumarki 2019–2022.

Nú berast fréttir af því að hæstv. matvælaráðherra ætli að trappa niður þessar greiðslur strax um áramótin þrátt fyrir að afkomuöryggi sauðfjárbænda hafi sjaldan verið verra í seinni tíð og þvert á svo gott sem fordæmalausa samstöðu innan stéttarinnar gegn þessum áformum ráðherrans, sem birtist m.a. á Búgreinaþingi og hjá Landssamtökum sauðfjárbænda. Og síðast en ekki síst, virðulegi forseti, þrátt fyrir að allt bendi til þess að niðurtröppun greiðslumarks nú bitni sérstaklega illa á stöðu ungra bænda í sauðfjárrækt sem hafa verið að fjárfesta í búum sínum. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Er eitthvað því til fyrirstöðu að endurskoðun sauðfjársamnings á nýju ári eigi sér stað á grunni gagna í stað þess að vaða af stað í þessa niðurtröppun á greiðslumarki um áramótin í andstöðu við vilja sauðfjárbænda?