153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

endurskoðun sauðfjársamnings.

[15:06]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og það er rétt, þessi málefni greiðslumarks og niðurtröppunar þess hafa verið töluvert til umræðu. Þessi niðurtröppun er fyrir hendi í gildandi búvörusamningum og er ekki sérstök eða sjálfstæð ákvörðun ráðherra heldur er samningurinn undirritaður af báðum aðilum. Þarna er tekin ákvörðun um það að vægi greiðslumarks verði dregið saman á ákveðnum tíma og eins og kemur fram í spurningu hv. þingmanns þá er það sameiginlegur skilningur aðila að það fari betur á því fyrirkomulagi sem tekur þá við. Samningarnir voru gerðir 2016 og þeir voru endurskoðaðir 2019 og svo staðfestir í atkvæðagreiðslu meðal bænda í bæði skiptin. En það sem skiptir máli hér er að það er fyrirhuguð endurskoðun samninganna á næsta ári í samræmi við búvörusamningana. En forsagan er í raun og veru löng því að á árinu 2016 var tekin ákvörðun um að fasa greiðslumarkið út á tímabili samningsins og þegar samningarnir voru undirritaðir var það auðvitað með fyrirvara um greiðslu út úr ríkissjóði o.s.frv., en eru undirritaðir af þáverandi formanni Bændasamtakanna og Landssamtaka sauðfjárbænda með fyrirvara um samþykkt bænda í allsherjaratkvæðagreiðslu. Þarna eru auðvitað mikilvæg sjónarmið á samningstímanum. Þetta er óvenjulegt fyrirkomulag. Við erum með tíu ár undir þegar búvörusamningar eru samþykktir. Það er full ástæða til að hafa þessi mál, rétt eins og öll önnur mál, undir þegar lögbundin og samningsbundin endurskoðun búvörusamninga fer fram á komandi ári.