endurskoðun sauðfjársamnings.
Virðulegi forseti. Já, ég átta mig alveg á því að það er ákveðin forsaga í þessu máli og þetta var auðvitað partur af samningum 2016. En það var hins vegar farin sú leið að tala um endurskoðun 2019 og 2023. Það var ákveðið 2019–2022 að bíða með þetta af því að ákveðnar rekstrarforsendur skiluðu sér ekki eins og skyldi. Núna hefur auðvitað árið í ár og árið í fyrra verið sérstaklega erfitt fyrir þessa grein eins og víða annars staðar vegna stöðunnar í heimshagkerfinu. Maður veltir því auðvitað fyrir sér hvort það sé heppilegt að fara af stað strax í þessa niðurtröppun núna um áramótin þegar liggur fyrir að það þarf að taka samræðuna á nýju ári. Er eitthvað því til fyrirstöðu að það verði gert líkt og síðast og það verði einfaldlega beðið með þetta núna um áramótin og farið í endurskoðunina, svo ég ítreki spurningu mína frá því áðan, á grunni gagna? Hæstv. ráðherra hlýtur að vera ljóst, miðað við samstöðu innan greinarinnar sem kom fram núna fyrr á árinu, að meira að segja þeir sem hafa talað fyrir langtímabreytingum í þessum málaflokki eru ekki sáttir við að þetta gerist núna um áramótin.