153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

endurskoðun sauðfjársamnings.

[15:09]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að átta sig á því að þarna er um að ræða að það fara sannarlega peningar út af tilteknum liðum búvörusamnings en þeir fara inn annars staðar. Það er mikilvægt að halda því til haga að hér erum við ekki að tala um að fjármagnið fari einfaldlega út úr kerfinu. Ég er sammála hv. þingmanni í því að við verðum að byggja ákvarðanir á gögnum og upplýsingum og við þurfum auðvitað líka að horfa sérstaklega til þess að rekstrarskilyrði sauðfjárræktar hafa verið erfið í gegnum tíðina og mér liggur við að segja að við séum með nýja skýrslu á tveggja til þriggja ára fresti um það hversu erfið sú staða er. Mér finnst mikilvægt að horfa til þess með heildstæðum hætti hvernig við komum til móts við þá stöðu vegna þess að þarna er auðvitað um að ræða mikilvægan þátt innlendrar matvælaframleiðslu. Ég setti í gang vinnu spretthóps við að skoða þessi mál sérstaklega vegna aðfanganna og þess vegna finnst mér mikilvægt að þegar við förum í endurskoðun búvörusamninga á næsta ári að við séum þá með heildarmyndina undir, (Forseti hringir.) en framkvæmdanefnd búvörusamninga er auðvitað samráðsvettvangur samningsaðila um framkvæmd búvörusamninga.