brottvísun hælisleitenda.
Herra forseti. Brottvísun Husseins Husseins hælisleitanda og fjölskyldu hans hefur nú verið dæmd ólögleg. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu nú á öðrum tímanum í dag að úrskurður kærunefndar útlendingamála um að vísa fjölskyldunni — vísa honum aftur til Grikklands og flytja hann þangað skuli felldur úr gildi. Hussein, sem notast við hjólastól, og fjölskylda hans voru flutt af landi brott til Grikklands í byrjun nóvember. Brottvísunin vakti hörð viðbrögð og þótti mörgum lögregla ganga harkalega fram. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagðist á sínum tíma hafa gert alvarlegar athugasemdir við brottvísunina og sagði að sér þætti þetta afar leiðinlegt mál og kvaðst ekki sammála þeirri stefnu sem þarna væri að baki. Íslensk stjórnvöld fluttu Hussein nauðugan úr landi. Ég vil því spyrja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra: Hvernig líður honum með að hafa þurft að verja ákvörðun og framkvæmd sem nú er búið að úrskurða fyrir dómi að sé ólögmæt? Það var flestum ljóst sem urðu vitni að þeim atburði. Treystir hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra hæstv. dómsmálaráðherra fyrir þessum málaflokki?