153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

brottvísun hælisleitenda.

[15:19]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Við þekkjum öll aðdragandann að þessu máli, þar með talið brottvísunina, og líkt og hv. þingmaður kom inn á þá lá niðurstaða héraðsdóms í þessu máli fyrir núna á öðrum tímanum, að ég tel. Þar er úrskurður kærunefndar útlendingamála felldur úr gildi. Ég geri þá ráð fyrir því að það sé þá ákvörðun þar til gerðra stjórnvalda hvort þau ætli að áfrýja þessu máli eða ekki. En það er alla vega ljóst í mínum huga, þótt ég hafi ekki haft tækifæri til að kynna mér dóminn, enda var a.m.k. ekki búið að birta hann klukkan þrjú í dag, að að mínu viti þarf að tryggja að þessi einstaklingur fái efnismeðferð, að sjálfsögðu, eins og hann á rétt á samkvæmt niðurstöðu dómstóla. Ég geri ráð fyrir því að það verði tryggt. En ef þar til gerð stjórnvöld ákveða að áfrýja málinu snýr það auðvitað aðeins öðruvísi við.

Ég ætla að leyfa mér að fagna því að þetta sé niðurstaða héraðsdóms því að mér finnst eðlilegt að tekið sé tillit til fötlunar fólks í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þegar við höfum öll haft tækifæri til að kynna okkur þennan dóm þá held ég að það verði áhugavert að sjá hvaða málsatvik það er sem héraðsdómur byggir sína niðurstöðu á. En alla vega út frá því sem brjóstvitið segir manni þá gæti þar verið um mikilvægi samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að ræða en það er erfitt að fullyrða eitt eða neitt um það hér úr ræðustól þegar maður hefur ekki haft tækifæri til að lesa yfir dóminn.