brottvísun hælisleitenda.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Dómur þessi er fréttnæmur af mörgum ástæðum, m.a. af þeirri ástæðu að þegar um matskenndar ákvarðanir stjórnvalda er að ræða þá er endurskoðun dómstóla á því mati gríðarlega takmörkuð. Á mannamáli þýðir það að það er stefna ríkisstjórnarinnar að vísa fólki til Grikklands eins og kostur er. Það eru ekki lögin. Það eru stjórnvöld sem hafa túlkað lögin með þeim hætti. Hæstv. forsætisráðherra hefur haft orð á því að draga beri lærdóm af þessu máli og fleirum þar sem Útlendingastofnun hefur verið gerð afturreka með ómannúðlega framkvæmd sína síðustu vikur. Af því tilefni vil ég spyrja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra: Hvaða lærdóm nákvæmlega telur hann að ríkisstjórninni beri að draga af þessu máli? Eingöngu þann lærdóm að bæta þurfi tækjabúnað lögreglunnar svo að hún geti vandað sig betur við að flytja fatlað fólk nauðugt úr landi? Eða telur ráðherrann ástæðu til að endurskoða þá stefnu ríkisstjórnarinnar að vísa fötluðu fólki jafnt sem nýfæddum börnum á götuna í Grikklandi?