153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

brottvísun hælisleitenda.

[15:23]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég hef áður sagt að það er mín skoðun að vegna þess að aðila greinir á, svo ekki sé meira sagt, um það hvort aðstæður séu með þeim hætti í Grikklandi að það sé forsvaranlegt að senda fólk þangað, þá eigi að sjálfsögðu að gera skoðun á því hvernig aðstæður eru í Grikklandi. Þegar maður stendur frammi fyrir viðfangsefni þar sem eru skiptar skoðanir og kannski mismunandi rökstuðningur fyrir því, eins og í þessu tilfelli, hvort það eigi að senda eða ekki senda, þá finnst mér að það sé hlutverk stjórnvalda að ganga úr skugga um hvort svo sé. Ég held líka að við þurfum að horfa til þess þegar teknar eru ákvarðanir varðandi brottvísun hvort mál eru inni í kerfinu, þó svo að þau séu búin í hinni stjórnsýslulegu meðferð en eru t.d. fyrir dómstólum, hvort þar sé um mögulega fordæmisgefandi mál að ræða eða ekki.