153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

orkuskipti í sjávarútvegi.

[15:24]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Hæstv. matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur lagt fram þrjú þingmál um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem eru á dagskrá þingsins núna fyrir jól og snúa að orkuskiptum í sjávarútvegi. Sjávarútvegurinn hefur náð verulegum árangri í að draga úr losun undanfarin 20 ár. Rannsóknir sýna að þetta hefur fyrst og fremst skýrst af styrkingu fiskstofna, sérstaklega þorskstofnsins sem lækkar olíuþörf við veiðar, og vegna kolefnisgjalds sem lagt var á útgerðina fyrir allnokkrum árum síðan. Tækniþróun hefur samkvæmt þessum rannsóknum haft lítið að segja í þessum geira hingað til. Tækniþróun er flókin og síbreytileg. Erfitt er fyrir stjórnmálamenn að sjá fyrir þá þróun og segja fyrir hvaða lausnir eru skynsamlegastar fyrir útgerðina.

Hlutverk grænna skatta er að skapa almenna hvata til að draga úr umfangi mengunar. Atvinnugreinunum er síðan falið það hlutverk að finna hagkvæmustu leiðir til að draga úr losun. Alltaf liggur fyrir hvaða kostnaður og ábati er af grænum sköttum, eins og kolefnisgjöldin eru. Útgerðin mun ráðast í aðgerðir sem eru ódýrari en kolefnisgjaldið, að öðrum kosti greiða gjaldið. Við vitum hins vegar ekki hvaða kostnað frumvörp hæstv. ráðherra munu hafa í för með sér. Þessi kostnaður er falinn. Grænir skattar eins og kolefnisgjöldin eru þar að auki í samræmi við viðmið um að sá sem mengar borgar. Í ljósi þess að kolefnisgjald hefur skilað árangri í sjávarútvegi má velta fyrir sér hvers vegna er farið inn á þá braut sem gert er í frumvörpum hæstv. ráðherra, að koma með sértæk fyrirmæli um hvernig draga beri úr losun, sem eru þá tæknilausnir fyrir smábáta, þann hluta flotans sem minnst losar í raun, og ákvæði um hönnun skipa. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Er hækkun kolefnisgjalda í útgerð hluti af væntanlegum aðgerðum stjórnvalda til að ná markmiðum Íslands til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda?