153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

orkuskipti í sjávarútvegi.

[15:26]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég hef sagt það að þegar við erum að tala um orkuskipti í sjávarútvegi, rétt eins og í landbúnaði eða öðrum geirum samfélagsins, þá erum við í þeirri stöðu að við getum ekki leyft okkur einföld svör við flóknum spurningum. Við þurfum að hafa öll þau verkfæri undir sem tæk eru, þar á meðal sérstaka gjaldtöku fyrir losun. Það breytir því ekki að við getum ekki sagt þar með að við getum ekki tekið til skoðunar skref sem eru e.t.v. smærri, tæknilegri eða ófyrirséðari á einhvern hátt. Ég nefni til að mynda sérstaka hvatningu varðandi smábáta til að fara yfir í rafeldsneyti, sem við vitum í raun og veru ekkert um hvaða áhrif muni hafa, hverjir muni hreyfa sig í þá átt o.s.frv. Samt sem áður vil ég segja það skýrt af hálfu stjórnvalda að við viljum stíga öll skref, stór og smá, til að hvetja geirann til þess að mjaka sér í áttina að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ég hef fundað með bæði umhverfisfólki og forystufólki útgerðarinnar, bæði smábáta og meðalstórra útgerða og stóru útgerðarinnar, og mér finnst þau öll vera sammála um það að við megum í raun og veru engan tíma missa og þurfum að nota allar þær hugmyndir sem hafa verið á borðinu.