153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

orkuskipti í sjávarútvegi.

[15:28]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin. Þau voru kannski ekki eins skýr eins og ég hefði óskað eftir því að spurningin var í sjálfu sér mjög skýr. Ég tek undir með ráðherranum að einföld svör við flóknum spurningum eru sjaldgæf. Ég fagna því raunar að þetta sé hennar viðhorf vegna þess að tilfellið er að kolefnisgjöldin ráðast að hjarta þess vandamáls, þ.e. færa ákvörðunina til þess sem er í bestri aðstöðu til að átta sig á því hvaða leiðir eru bestar og ódýrastar fyrir samfélagið til að takast á við þennan vanda. Og einmitt vegna þess að við þurfum að nýta tímann vel, við megum engin tækifæri missa, vil ég aftur spyrja: Stendur til að hækka kolefnisgjöld á útgerð?