orkuskipti í sjávarútvegi.
Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður veit þá stendur yfir umfangsmikil vinna sem felur í sér heildarendurskoðun á umhverfi sjávarútvegsins á Íslandi og þar með talið eru einmitt þessi umhverfis- og vistkerfissjónarmið, því að þetta hangir allt saman hvort sem við erum að tala um losun gróðurhúsalofttegunda eða yfirleitt sambúðina við vistkerfi sjávar, sem við höfum kannski ekki tekið eins mikið í reikninginn og við hefðum átt að gera hér fyrr á áratugum. En í þessari vinnu eru þessi gjöld ekki undanskilin. Þarna er á ferðinni grundvallarumræða um endurgjald fyrir aðgengi að auðlind sem er í eigu þjóðarinnar og við eigum von á fyrstu tillögum frá þessum starfshópum núna á allra næstu vikum. Ég ætla ekki að verða til þess að nefna einhverjar tilteknar tillögur hér í dag en vil hins vegar fullvissa hv. þingmann um að þeirra er að vænta og ég hlakka til að fá þær inn í alvöruumræðu.