153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

greiðslumark sauðfjárbænda.

[15:31]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Áform matvælaráðuneytisins um að niðurtröppun á greiðslumarki sauðfjárbænda hefjist að nýju nú í lok árs hafa legið fyrir undanfarna mánuði. Í dag er greiðslumarkið eini öruggi greiðslugrunnurinn sem sauðfjárbændur hljóta sama hvort árar vel eða illa. Með tilkomu þess myndaðist söguleg sátt innan stéttarinnar. Árið 2019 var ákveðið að stöðva niðurtröppun greiðslumarks vegna slæmrar afkomu í stéttinni. Það var án efa rétt skref á sínum tíma en staða sauðfjárbænda í dag er því miður engu skárri en þá. Það vekur því furðu að hefja eigi niðurtröppun að nýju þegar staðan hefur ekki batnað síðan árið 2019. Rekstrargrundvöllur fer versnandi og nýliðun er því miður í lágmarki. Sauðfjárbændur á Norðvestur- og Norðausturlandi horfa áhyggjufullir á áframhaldið, skyldi umrædd niðurtröppun verða að veruleika, enda þau svæði landsins sem verst verða úti ef þetta gengur eftir. Sauðfjárbændur hafa ítrekað ávarpað fyrirhugaða niðurtröppun og deilt áhyggjum sínum af stöðunni, bæði opinberlega og innan sinna raða. Þá er vert að benda á síðustu tvo aðalfundi sauðfjárbænda. Þar hefur það verið samhljóma niðurstaða að niðurtröppun skuli ekki taka gildi um áramótin og því augljóst á þessu að stéttin stendur saman í þessu máli. Að auki vekja þessi áform sérstakan óhug meðal yngri sauðfjárbænda sem margir hafa fjárfest í greiðslumarki. Þessi óvissa er alls ekki til þess fallin að auka nýliðun innan stéttarinnar. Þetta er skýr vilji bænda og hann byggir ekki á óskhyggju heldur nauðsyn. Vegna þessa vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hyggst halda niðurtröppun á greiðslumarki til sauðfjárbænda áfram í lok ársins þrátt fyrir ákall sauðfjárbænda og þann mikla sameiningarmátt sem loksins er innan greinarinnar.