153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

greiðslumark sauðfjárbænda.

[15:33]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram hér í svari mínu við fyrirspurn annars þingmanns fyrr í fyrirspurnatímanum þá eru búvörusamningar auðvitað í gildi og á þeim fer tvisvar fram endurskoðun. Það gerðist 2019 og það gerist aftur á næsta ári. Síðan vil ég segja það að bændur hafa enga eina skoðun á þessu kerfi. Þetta vitum við vegna þess að bændur hafa verið spurðir út í afstöðuna frekar nýlega, líka vegna þess að sjónarmið bænda sem hringja í mig, í ráðuneytið, í fleiri, eru ólík. Þegar sauðfjárbændur eru spurðir hversu sanngjarnt eða ósanngjarnt þeim finnist greiðslumarkskerfið vera þá er afstaða sauðfjárbænda klofin. Sá hluti sauðfjárbænda sem á mikið greiðslumark vill halda í það kerfi og finnst það sanngjarnt. Þeir bændur sem eiga lítið greiðslumark og sjá að þangað flytjast fjármunir finnst þetta kerfi ósanngjarnt. Raunar er kerfið svo umdeilt að meira að segja fimmtungur þess hluta sauðfjárbænda sem á mikið greiðslumark telur að kerfið sé ósanngjarnt þrátt fyrir það. Þessi spurning var lögð fyrir sauðfjárbændur sumarið 2021 í könnun á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og könnuninni svöruðu 770 sauðfjárbændur.

Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að við verðum að halda samtalinu opnu við bændur og við verðum að heyra og ræða hvernig málin eru. En ef samningar eru í gildi þá eru þeir í gildi beggja vegna borðs. Það er líka rétt að nefna það að á sínum tíma var umræða um það að bændur yrðu við núverandi aðstæður að kaupa réttinn til að fá stuðning frá almenningi í gegnum búvörusamninga af bændum sem væru að hætta og þannig væri um að ræða í raun og veru inngangshindrun inn í kerfið sem væri ekki til þess fallin að styðja við starfandi bændur. Þannig að á þessu eru mjög margar hliðar. En ég held að umræðan sé mikilvæg. Aðalatriðið er það, virðulegi forseti, að halda því til haga að á mínum tíma í embætti hefur svo sannarlega verið hlustað á bændur.