153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

greiðslumark sauðfjárbænda.

[15:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir svarið. Það er afar ánægjulegt að heyra að það sé verið að hlusta á sauðfjárbændur. Það er varla hægt að ítreka nógu oft hversu mikilvægt það er að taka samtalið og það sé hlustað, því að sjaldan hefur vilji sauðfjárbænda verið jafn skýr og núna. Líkt og ég kom inn á í minni fyrri ræðu kom á síðustu tveimur aðalfundum sauðfjárbænda fram skýr vilji varðandi niðurtröppunina og óskað eftir að beðið sé með hana, sérstaklega í ljósi þess að endurskoðun samninga mun fara fram á nýju ári. Við eigum að koma í veg fyrir að rekstrargrundvöllur sauðfjárbænda sem stendur höllum fæti í dag fari versnandi. Með leyfi forseta, vitna ég hér til samningsins:

„Á grundvelli upplýsinga skv. 1. mgr. getur framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveðið að færa fjármuni á milli einstakra verkefna sem falla undir samning um starfsskilyrði sauðfjárræktar. Heimilt er að færa árlega allt að 20% þeirrar fjárhæðar sem ætluð er til hvers verkefnis.“

Því spyr ég hæstv. ráðherra: Er þetta ekki leið sem er hugsanlega fær þar sem kveðið er á um þetta í samningnum sjálfum?