aðgengi að sálfræðiþjónustu.
Virðulegi forseti. Það er núna á þriðja ár síðan lög voru samþykkt hér í þingsal með samþykki allra flokka, það voru flutningsmenn allra flokka á því frumvarpi, sem voru lög um niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Síðan, satt best að segja, hafa ekki verið tekin mjög afgerandi skref til að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu eins og lagt var upp með í upphafi. Við sjáum að það eru allir sem taka undir það sem var rauði þráðurinn í frumvarpinu, að andleg líðan verði metin jöfn líkamlegri heilsu. Við sjáum það líka núna í umsögnum t.d. varðandi fjárlagafrumvarpið að Geðhjálp er með harkalega gagnrýni á fjárlagafrumvarpið og dregur fram að við sitjum svolítið eftir með þá hugsun að andleg líðan verði jafngild þeirri líkamlegu, því að aðeins 5% af því fjármagni sem fer til heilbrigðismála renna til geðheilbrigðismála. Það skiptir öllu máli að almenningur hafi greiðan aðgang að sálfræðiþjónustu og ekki síst ungt fólk og tekjulágt fólk sem oftar en ekki hefur þurft að neita sér um þessa þjónustu fram að þessu. Það hefur verið bætt í geðheilbrigðismálin en það er enn þá þannig að þegar er hringt í heilsugæsluna þá er svarið: Þú verður að bíða í 12 vikur. Og hvað gerist? Auðvitað er staðan áfram þannig að fólk fer og kaupir sér sálfræðiþjónustu upp á 20.000 kr. og þeir sem hafa ekki efni á því að kaupa sálfræðiþjónustuna sitja eftir. Þeir bíða með þessa nauðsynlegu þjónustu og aðstoð sem þeir þurfa á að halda.
Þannig að ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju þetta tregðulögmál hjá ríkisstjórninni? Af hverju þessi tæknilegu svör endalaust? Fólkið úti í samfélaginu, sérstaklega unga fólkið og tekjulága fólkið, finnur að kerfið er ekki með opinn faðminn. (Forseti hringir.) Hvað ætlar heilbrigðisráðherra að gera til þess að hann opnist endanlega þessi faðmur ríkisins til þess að styðja nákvæmlega við þessa viðkvæmu hópa sem við viljum öll styðja við?