153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

Pólitísk ábyrgð á Íslandi.

[16:14]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir þessa umræðu sem er svo sannarlega frábær vegna þessa máls sem við erum búin að vera að ræða hér í samfélaginu síðan drifið var í því að selja Íslandsbanka, sérstaklega síðari salan. Mig langar að einbeita mér að þessu hugtaki, armslengd, sem hefur verið svona ofboðslega mikið í tísku. Um leið ætla ég að leggja það fyrir þá sem á þetta hlusta að meta það sjálfir hvort það sé armslengd í lögum um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009. Með leyfi forseta ætla ég að vísa í 9. gr.:

„Lok starfseminnar: Stofnunin skal hafa lokið störfum eigi síðar en fimm árum frá því að hún er sett á fót og verður hún þá lögð niður.“

Svo mörg voru þau orð. Frá því 20. ágúst 2014 starfaði sem sagt Bankasýsla ríkisins í lagalegu tómarúmi þangað til greinin var felld brott 22. febrúar 2019 og í staðinn kom ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: „Stofnunina skal leggja niður þegar verkefnum hennar er lokið.“

Það verður að vekja athygli á því að á þessu tímabili þótti hæstv. fjármálaráðherra greinilega mjög vænt um Bankasýsluna ef marka má hvernig hann þvældist alltaf með Bankasýsluna á milli þeirra ráðuneyta sem hann stýrði sjálfur. Þegar hann var í fjármálaráðuneytinu þá var hún þar. Svo tekur Benedikt Jóhannesson við fjármálaráðuneytinu, þá tekur hæstv. fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson með sér Bankasýsluna í forsætisráðuneytið. Síðan kemur hæstv. ráðherra Katrín Jakobsdóttir í forsætisráðuneytið og þá tekur hæstv. fjármálaráðherra með sér Bankasýsluna enn eina ferðina og nú í fjármálaráðuneytið.

Virðulegi forseti. Ég vil bara segja þetta: Hvað er armslengd? Ef hægt er að kalla það armslengd sem ég er að lýsa hér og tala um þá er armslengd bara ekki til.