Pólitísk ábyrgð á Íslandi.
Frú forseti. Við erum farin að ræða hér um armslengd. (Gripið fram í: Ég reyndi.) Hún er vissulega mjög áhugavert viðfangsefni. Það er kannski óheppilegt, maður hefði alla jafna svona akademískan áhuga á einhverju viðfangsefni en akkúrat núna í ákveðnu samhengi þá er því, því miður, stillt upp þannig að það eru kannski aðrar tilfinningar og önnur sjónarmið sem blandast inn í þá umræðu alla saman. Það er svo sem skiljanlegt en flækir hana auðvitað. Það er auðvitað margt um þetta mál að segja sem fyrir mitt leyti er kannski ekki tímabært enn sem komið er þar sem vinna stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar við rýningu á þeirri skýrslu sem var gerð til að skoða það mál er enn í gangi. En með armslengdina er það að segja að mér hefur þótt áhugavert að heyra og sjá í umræðu hér að horft er til þess t.d. að hvergi sé minnst á armslengd, hvorki í lögum né greinargerð, og það er alveg rétt. Hins vegar má segja sem svo að það sé eðli málsins samkvæmt, þarna er verið að búa svo um hnúta að það sé búin til eining til þess að stjórnmálin séu í ákveðinni fjarlægð frá þeirri einingu, hvernig sem það er síðan skilgreint. Þetta sáum við allt frá umræðunni í vor og þangað til núna, það er stundum bæði sleppt og haldið varðandi það hvort ráðherra átti að skoða alla lista eða hvort hann átti ekki að skoða neinn lista o.s.frv. Mig langar að fá að enda þessa umræðu um ábyrgðina alla saman á að nefna að það er eitt dæmi sem er oft notað sem eru hæfisnefndirnar. Ef ráðherra felur hæfisnefnd að velja einhvern í vinnu og umsækjandi lýgur til um hæfni sína, fær starfið í gegnum mat hæfisnefndar en reynist svo ekki hæfastur, þá myndi ráðherra ekki bera ábyrgð á því. (Forseti hringir.) Það er í þessu samhengi í mannheimum og stjórnmálunum sem við verðum stundum að skoða öll gráu svæðin sem eru mörg, en stóra myndin og hyggjuvitið verður líka aðeins að aðstoða okkur.