153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

Pólitísk ábyrgð á Íslandi.

[16:21]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem mér hefur þótt að mörgu leyti mjög góð. Í raun vekur hún upp nokkrar spurningar hjá þeirri sem hér stendur. Það er ágætt að heyra það frá hæstv. ráðherra að ráðgjöf varðandi siðareglur sé á hendi sérfræðinga forsætisráðuneytisins. En það sem situr enn þá í mér eftir að hafa unnið með þessi heilindamál hér í þinginu er t.d. það að hagsmunaskrá ráðherra er ekki vöktuð með neinum sjálfstæðum hætti, þ.e. að ráðherrum er gert að telja upp hagsmuni sína í hagsmunaskrá og það er enginn sem hefur það hlutverk að kanna hvort rétt sé að því staðið og það eru heldur engar afleiðingar við því að ljúga til um hagsmuni sína í hagsmunaskrá. Síðan langaði mig að nefna — þó að mér finnist ótrúlegt að ég eigi bara tvær mínútur, virðulegur forseti, eru það ekki þrjár í lokin? Jæja, þá verð ég bara að haska mér. En mér finnst mjög mikilvægt að koma á þessu sjálfstæða eftirliti.

Mig langaði líka að inna hæstv. forsætisráðherra eftir svörum við því hvar vinna á endurskoðun á fyrirkomulaginu um landsdóm stendur. Það var tilkynnt á vef Stjórnarráðsins að henni ætti að vera lokið í lok árs 2020. En þetta mál, endurskoðun á því, og í raun hvernig hefur verið komið fram við landsdóm eins og einhvers konar úrhrak í íslenskri stjórnskipan, hefur auðvitað staðið í vegi fyrir því að hin lagalega ábyrgð ráðherra virkist nokkru sinni vegna þess að það mætti líta á þetta sem einhvers konar kjarnorkuvopn miðað við hvernig er talað um landsdóm í íslenskri stjórnskipan.

Síðan vildi ég líka bara koma því að að það er ekkert embætti á Íslandi sem hefur það sérstaka verkefni að rannsaka spillingu eða þegar fólk misfer með vald o.s.frv. Það er eitthvað sem virkilega væri til bóta, tel ég, við sjáum það bara að það er bara einn þingmaður á Íslandi, svo ég muni til, sem hefur sætt rannsókn vegna spillingar. Það gefur auðvitað tilefni til umhugsunar um (Forseti hringir.) hvort ekki þurfi að standa betur að þessum málum. Ég ætlaði nú að tala um armslengdina en ég tapaði mínútu þannig að það verður bara að hafa sig, virðulegi forseti.