fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Af vinnulaginu við meðferð þessa máls fékkst endanleg staðfesting á því að hæstv. ríkisstjórn rekur enga stefnu. Hún rekur bara viðbrögð við sjálfsköpuðum vandamálum í velferðarkerfinu eftir samfelldan áratug af aðhaldi og niðurskurði sem hefur rúið mikilvæga samfélagslega innviði inn að skinni. Stórir velferðarmálaflokkar fóru vanfjármagnaðir inn í frumvarpið nú í haust til þess eins að tromma upp blaðamannafund nú rétt fyrir jól með aukafjárframlögum. Við komumst ekkert áfram sem samfélag, virðulegi forseti, með svona stjórnarháttum. Stjórnmálin eiga að snúast um þjónustu við almenning en sambandið milli ríkisstjórnar og þjóðar, þings og þjóðar, hefur breyst í örvæntingarfullt samtal um neyðarfjármögnun hverju sinni. Það vantar tilfinnanlega forystu í núverandi hæstv. ríkisstjórn sem endurspeglar meirihlutavilja þjóðar. Til þess þarf einfaldlega að losa neitunarvaldið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og við í Samfylkingunni treystum okkur að sjálfsögðu til að veita slíka forystu þegar að því kemur.