fjárlög 2023.
Herra forseti. Ég gef mér það að við fögnum öll gerð kjarasamninga en skrifað var undir kjarasamninga í dag. Það markar þann áfanga að meiri hluti launafólks á hinum almenna vinnumarkaði er kominn með samninga, fyrst með samningum Starfsgreinasambandsins fyrir viku og nú þeim samningum sem skrifað var undir í dag. Ríkisstjórnin kynnti víðtækar aðgerðir hér áðan í tengslum við gerð þessara kjarasamninga og markmið þeirra aðgerða er að styðja enn frekar en gert hefur verið við lág- og millitekjufólk og barnafjölskyldur með markvissum aðgerðum í húsnæðismálum og verulegri hækkun barnabóta. Við leggjum áfram áherslu á að auka framboð af íbúðarhúsnæði og tryggja það markmið, sem birtist í stjórnarsáttmála, að barnabótakerfið nái til fleiri fjölskyldna í landinu og styðji betur við barnafólk, fyrir utan að einfalda kerfið. Nokkrar þeirra breytingartillagna minni hlutans sem liggja frammi miða að þessu sama marki. Sumar þeirra ganga skemur en ríkisstjórnin hefur boðað og því mun ríkisstjórnarmeirihlutinn fella þær tillögur minni hlutans en vinna að nauðsynlegum breytingum á fjárlagafrumvarpinu í samvinnu við fjárlaganefnd fyrir 3. umr. Annars vegar mun koma (Forseti hringir.) tillaga um viðbótarframlag barnabóta og hins vegar tilfærslur af almennum varasjóði til húsnæðismála. Þetta er mikilvægt fjárlagafrumvarp (Forseti hringir.) á snúnum tímum í efnahagsmálum þjóðarinnar og það skiptir miklu máli hvernig við höldum á málum hér, herra forseti.