153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:43]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég deili áhyggjum hv. þm. Haralds Benediktssonar af slakri afkomu ríkissjóðs sem fram kemur í þessum fjárlögum. Ég hygg þó að áhyggjur mínar séu enn meiri en hans. Ísland hefur nú þann vafasama heiður að vera með hæstu vaxtabyrði allra ríkja innan OECD. Hærri en Grikkland, hærri en Ítalía, fimm sinnum hærri en meðaltal hinna Norðurlandanna og enn mun þessi byrði hækka eftir samþykkt enn einna hallafjárlaganna. Viðreisn leggur áherslu á að snúa þessari óheillaþróun við og ég vona að þeim tillögum sem við höfum lagt fram, til þess að reyna að stuðla að því, verði vel tekið.