fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Viðspyrna hagkerfisins hefur verið góð frá því að draga tók úr áhrifum af Covid-19 en þrátt fyrir það, eins og við öll þekkjum, eru áskoranir til staðar vegna verðbólgu og ekki síst vegna ástandsins í alþjóðamálum. Ríkissjóður verður sannarlega áfram í halla en hann rúmast vel innan ramma fjármálastefnunnar og þrátt fyrir útgjaldaaukningu er það minni halli en á yfirstandandi ári. Við erum hér með fjárlög sem styðja svo um munar við fólk og mikilvæga innviði á komandi ári. Við leggjum 12,2 milljarða kr. til að styrkja rekstrargrunn heilbrigðisstofnana og höldum áfram að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað. Tvöföldun frítekjumarks öryrkja og framlög til að fjölga NPA-samningum eru hér undir. Lögreglan, Landhelgisgæslan, fangelsismálin, ríkissaksóknari og héraðssaksóknari fá hér miklar viðbætur og löngu tímabærar. Það er líka áfram stuðningur við hreinorkubíla og Orkusjóð í samræmi við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þetta eru góð fjárlög og þau skipta máli fyrir fólkið í landinu.