fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka fjárlaganefnd fyrir góða vinnu við að taka málið hér á milli umræðna. Við erum með til afgreiðslu í dag töluvert umfangsmiklar tillögur, margar þeirra sem stafa frá ríkisstjórninni til þingsins sem á að hluta til rætur að rekja til þess að við erum enn sums staðar í kerfunum okkar að fást við eftirköst Covid-faraldursins og síðan hefur sömuleiðis margt gerst á árinu sem hefur valdið meiri verðbólguþrýstingi og það spilar inn í sumar þessara tillagna. En fram á við litið verðum við að leggja mikið á okkur til þess að ná niður verðbólgu í landinu í þágu heimilanna og í þágu atvinnulífs. Horfurnar inn í næsta ár eru áfram góðar. Þó að halli sé töluverður á ríkissjóði þá þarf m.a. að horfa til þess að við erum með ýmsar reiknaðar stærðir þar, t.d. í vaxtagjöldum, sem aðrar þjóðir eru ekki með hjá sér vegna þess að þær einfaldlega vita ekki hverjar framtíðarlífeyrisskuldbindingarnar eru. Við erum að sýna meira (Forseti hringir.) gagnsæi í slíkum hlutum en margar aðrar þjóðir. Verkinu er alls ekki lokið en við erum að ná mjög mikilvægum áfanga hér í dag.